151. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[14:00]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson):

Hæstv. forseti. Hv. þingmaður, takk fyrir þátttökuna í umræðunni. Hv. þingmaður kemur náttúrlega inn á margt fleira en akkúrat heilbrigðismálin og er það vel. Mig langar í fyrsta lagi að segja að Covid-19 hefur haft gríðarlega mikil áhrif og ég er stoltur af okkar opinbera heilbrigðiskerfi fyrir að hafa staðist það álag. Ríkisstjórnin hefur verið að styrkja og styðja við hið opinbera heilbrigðiskerfi fyrst og fremst með því að efla heilsugæsluna sem fyrsta viðkomustað og með því að auka þátttöku í kostnaði sjúklinga, sem fór niður í 700 kr. í fyrra og er búið að fella hann niður þegar kemur að ellilífeyrisþegum og öryrkjum. Það eru atriði sem eru ekki bara mikilvæg fyrir heilbrigðiskerfið heldur fyrir þjóðfélagið í heild sinni. Við horfum til þess að reyna að jafna mun milli fólksins í landinu, að það geti sótt grunnheilbrigðisþjónustu án tillits til efnahags og búsetu.

Kostnaðurinn fyrir heilbrigðiskerfið er mikill á þessu ári og í fjáraukalögum gerum við ráð fyrir að aukið verði við hann. Við aukum við framlög í kerfið um 15 milljarða kr. á milli ára. Ef ég man tölurnar rétt held ég að á tímabili þessarar áætlunar sé um að ræða 20–25% aukningu, en ég man þessar tölur kannski ekki alveg 100%. Verið er að auka við framlög til hjúkrunarheimilanna, heilsugæslunnar og geðheilbrigðismálanna. Ég held að þau skipti sérstaklega miklu máli á tímum Covid því að ekkert okkar er á þeim stað að geta liðið vel í því ástandi.