fjármálaáætlun 2021--2025.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. starfandi heilbrigðisráðherra fyrir hreinskilnina og ég vona að þetta mál skýrist sem allra fyrst. Vissulega er rétt að ekki hefur liðið langur tími, en við stöndum hér og ræðum fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar næstu árin.
Mig langar til þess að nýta þann tíma sem ég á eftir til að ræða biðlistamál. Síðastliðið vor voru 4.000 manns á biðlista eftir valkvæðum aðgerðum og hefur fjölgað um 1.000 á þeim tíma sem liðinn er. Það er auðvitað alveg ljóst að við búum við sérstakar aðstæður og þær ekkert sérlega góðar, en það breytir ekki þeirri staðreynd að það er enginn að gamni sínu á biðlista eftir aðgerðum á borð við liðskipti eða augnsteinaaðgerð, svo dæmi sé tekið. Þar liggur mikil þörf að baki. Þegar staðan var rædd í umræðum síðasta vor sagði hæstv. heilbrigðisráðherra að hún ætlaði sér að bregðast við með því að ræða við forstjóra allra heilbrigðisstofnana og átta sig á hvar best væri að bera niður til þess að vinna á þessum biðlistum. Það hefur ekki gengið, eins og dæmin sýna. Ég hef því áhuga á því að vita hvort einhver vinna sé í gangi hjá Sjúkratryggingum um að semja við sjálfstætt starfandi lækna til að vinna niður biðlistana og hvaða aðrar ráðstafanir séu í gangi.
Og mig langar, í ljósi orða starfandi heilbrigðisráðherra ítrekað, að leiðrétta: Sjálfstætt starfandi læknar í íslensku heilbrigðiskerfi eru, rétt eins og sjálfstætt starfandi sálfræðingar, hluti af hinu opinbera heilbrigðiskerfi ef þeim er leyft það með því að hleypa þeim að borðinu. (Forseti hringir.) Við erum með opinbert heilbrigðiskerfi á Íslandi. Um það ríkir eining. (Forseti hringir.) Hin pólitíska spurning er: Á allt að vera ríkisrekið? Og ef svarið þar er já (Forseti hringir.) þá munu sálfræðingarnir ekki fá að sinna starfi sínu og þá munu biðlistarnir ekki heldur ganga niður. (Forseti hringir.) Spurningin er því: Er verið að huga að því að semja við læknana okkar til að vinna á þessum biðlistum?
(Forseti (ÞorS): Enn minnir forseti á tímamörk sem eru tvær mínútur.)