151. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[14:10]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson):

Hæstv. forseti. Aðeins meira varðandi sálfræðiþjónustuna og þá umræðu. Af því að við erum að tala um tímann sem gefist hefur þarf náttúrlega líka að vera mjög skýrt hvaða þjónustu á að kaupa, í hvaða magni o.s.frv. Ég veit að hv. þingmaður veit að það er nokkuð sem huga þarf mjög vel að áður en ráðist er í það og veit að hún hefur skilning á því. En ég undirstrika að sálfræðiþjónusta fyrir almenning er undirstaðan og það er það sem hér er verið að reyna að vinna að.

Almennt varðandi biðlistana þá hefur náttúrlega þurft að fresta fjölmörgum aðgerðum vegna Covid. Þetta er ekkert venjulegt ástand sem við lifum við í samfélaginu, líkt og í öðrum samfélögum, þannig að sú er staðan.

Ég nefndi uppbyggingu liðskiptaseturs á Akranesi (HKF: Sjálfstætt starfandi …) og er verið að vinna að henni núna. Hinum valkvæðu aðgerðum var frestað í vor út af Covid, mörgum aðgerðum, eins og nefnt hefur verið. Verið er að undirbúa miðlæga biðlista sem tryggja að ekki sé tvöföld skráning og ég held að það sé skref í rétta átt. Einnig má segja almennt um samninga við sjálfstætt starfandi lækna að þeir hafa ekki náðst. Það er auðvitað áhyggjuefni, ég tek undir það með hv. þingmanni, en verið er að skoða samninga við hverja sérfræðigrein með tilliti til þarfar þjónustunnar í hverri grein o.s.frv., sem ég veit að hv. þingmaður þekkir mjög vel. Ég held að ég hafi þetta ekki lengra. Tíminn er búinn og ég þakka hv. þingmanni fyrir umræðuna.