fjármálaáætlun 2021--2025.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):
Herra forseti. Nýsköpun var ein af megináherslum stjórnarsáttmála þessarar ríkisstjórnar. Áherslan á nýsköpun hefur orðið enn meira afgerandi eftir atburði undanfarinna mánaða, eins og komið hefur skýrt fram í þeim aðgerðum sem ríkisstjórnin hefur kynnt að undanförnu og Alþingi hefur tekið til meðferðar og samþykkt eftir atvikum og jafnvel bætt í.
Andspænis því mikla efnahagsáfalli sem við stöndum frammi fyrir er nýsköpun eitt stærsta og veigamesta svarið, að styðja við hugvit, sköpun og framtakssemi frumkvöðla af meiri krafti en áður. Það er eitt af því mikilvægasta sem leggja mun grunn að viðspyrnu efnahagslífsins og framtíðarvelferð þjóðarinnar. Það er okkar sýn, það er okkar stefna og hún birtist með mjög afgerandi hætti í þeirri fjármálaáætlun sem hér er til umræðu. Ég hef oft sagt, m.a. í þessum ræðustól, að umfang opinberra útgjalda sé ekki gæðastimpill á stjórnmálamenn eins og oft er látið í veðri vaka. En stundum eru þær aðstæður uppi að stíga þarf afgerandi skref á mælikvarða fjármuna og útgjalda og þær aðstæður eru einfaldlega uppi núna. Þess vegna tel ég það góð og mikilvæg tíðindi að þessi fjármálaáætlun felur í sér stórkostlega aukin framlög til nýsköpunar og rannsókna, mögulega mestu aukningu sem dæmi eru um. Framlög til nýsköpunar og rannsókna hækka þannig um 10 milljarða kr. á næsta ári, úr tæpum 16 milljörðum í 26, eða um meira en 60%. Samtals er verið að bæta um 40 milljörðum kr. í málaflokkinn á fimm ára tímabili fjármálaáætlunar, samanborið við óbreytt framlög á fjárlögum yfirstandandi árs. Stór hluti rennur til rannsóknar- og þróunarverkefna hjá fyrirtækjum í gegnum endurgreiðslukerfið. Stór hluti rennur til frumkvöðla- og sprotafyrirtækja í gegnum samkeppnissjóði og stór hluti, eða um 7,5 milljarðar, renna til Kríu, hvatasjóðs vísifjárfestinga, sem styrkir nýsköpun í umhverfi okkar þar sem það er einna veikast fyrir, nefnilega þegar kemur að fjármögnunarmöguleikum á viðkvæmu en mikilvægu stigi í lífi sprotafyrirtækja. Þessi afgerandi stuðningur við nýsköpun og rannsóknir er ein stærsta fréttin í þessari fjármálaáætlun. Hún samrýmist mjög vel þeirri nýsköpunarstefnu fyrir Ísland sem ég kynnti fyrr á kjörtímabilinu og við vorum byrjuð að vinna eftir áður en Covid gaf okkur tilefni til að stíga enn fastar til jarðar og taka stærri skref og hraðari. Útgjaldaaukningin er að töluverðu leyti tímabundin ráðstöfun til að vinna á móti áhrifum faraldursins og því er gert ráð fyrir að hún gangi að hluta til til baka undir lok tímabilsins. Eins og ég nefndi hér að framan eru sérstakar aðstæður uppi sem kalla á þessar aðgerðir en almennt séð er það ekki höfuðmarkmið mitt að auka ríkisútgjöld sem allra mest og til sem lengstrar framtíðar.
Herra forseti. Fyrirtæki í ferðaþjónustu standa sem kunnugt er frammi fyrir miklum bráðavanda og alvarlegum sem ríkisstjórnin hefur komið til móts við með bæði almennum og sértækum aðgerðum. Útgjöld vegna þeirra birtast hins vegar að mestu annars staðar í þessari fjármálaáætlun en undir sjálfu málefnasviðinu. Þó er um að ræða hækkun upp á tæplega 600 milljónir milli ára vegna tímabundinna átaksverkefna, einkum hvað varðar uppbyggingu á fyrirmyndaráfangastöðum í ferðaþjónustu, sem voru eitt af höfuðáherslumálum Vegvísis í ferðaþjónustu, uppbyggingar varanlegra salerna á áfangastöðum við hringveginn og aukins framlags til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða. Þessi verkefni eru hluti af fjárfestingarátaki ríkisstjórnarinnar til að sporna við niðursveiflu í efnahagslífinu í kjölfar faraldursins.
Fyrir Covid höfðum við markað framtíðarsýn og leiðarljós ferðaþjónustunnar þar sem sjálfbærni og arðsemi gegndi lykilhlutverki fremur en fjöldi ferðamanna, ásamt því að þróa jafnvægisás sem stýritæki fyrir greinina. Þessi verkfæri munu gagnast vel við uppbyggingu greinarinnar að nýju og það er gott að sjá að leiðarljós og stefnurammi fyrir greinina til ársins 2030 stendur á styrkum stoðum og við höfum tækifæri til að byggja á því þegar aðstæður leyfa. Við höfum fulla trú á að ferðaþjónustan muni taka kröftuglega við sér þegar aðstæður leyfa. Til að styðja við þá sókn höfum við sem kunnugt er sett verulega fjármuni til hliðar í alþjóðlegt markaðsverkefni sem er þegar hafið en á þá enn þá töluvert mikið inni, megnið af fjármununum. Við byggjum áfram upp innviði auk þeirra umfangsmiklu úrræða fyrir atvinnulífið sem ég kom aðeins inn á hér.
Í orkumálum höfum við nýlega kynnt langtímaorkustefnu fyrir Ísland sem unnin var í þverpólitísku samstarfi. Fjölmörg verkefni í anda stefnunnar eru þegar komin langt á veg, markmið og forgangsröðun fjármálaáætlunar rímar vel við orkustefnuna. Ég nefni sem dæmi stórhækkuð framlög til jöfnunar á dreifikostnaði raforku um landið, átak í jarðstrengjavæðingu og þrífösun, sem gerir okkur kleift að ljúka ákveðnum markmiðum þar á fimm árum í stað 15, og að fækka truflunum í dreifikerfi raforku um 85%. Þá er að sjálfsögðu áfram þung áhersla á orkuskipti.
Herra forseti. Þetta eru í mjög stuttu máli breiðu línurnar hvað varðar þá málaflokka sem undir mig heyra. En ég fagna því að sjálfsögðu að fá tækifæri til að eiga samtal við þingmenn um einstök atriði hér á eftir.