151. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[14:25]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Ég þakka það tækifæri sem ég fæ til að eiga orðastað við hæstv. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Ég ætla að byrja á að ræða um nýsköpun. Áður en veirufaraldurinn knúði hér dyra kynnti hæstv. ráðherra fyrirætlanir sínar um að leggja niður Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Þetta var í lok febrúar, áður en faraldurinn kom hingað. Frumvarp þess efnis hefur ekki komið fram á þinginu enn þá en þessar fyrirætlanir munu enn vera í bígerð. Því spyr ég hvort rétt sé að ráðast í slíkar mjög svo afdrifaríkar breytingar á því sviði á þessum tímum þegar stjórnvöld, og reyndar miklu fleiri, telja og leggja áherslu á að nýsköpun gegni veigamiklu hlutverki við að spyrna okkur upp af botni þeirrar niðursveiflu sem við nú horfum fram á. Það virðist vera sem allt sé óljóst um tilefni þess að leggja stofnunina niður eða hvernig þjóna eigi markmiðum um nýsköpun með þessari aðgerð. Hvað verður um starfsmenn, þeirra störf? Talað er um að taka á leigu mun dýrara húsnæði í Vatnsmýrinni en núverandi húsnæði er í jaðri borgarinnar. Hvernig nýtist það við nýsköpun? Jafnvel er talað um að hluti af verkefnum Nýsköpunarmiðstöðvarinnar eigi að fara inn í ráðuneytið.

Ég spyr ráðherra: Hvaða nýsköpunarverkefni á að vinna í ráðuneytinu, ráðuneyti nýsköpunar? Nákvæmlega hvaða verkefni eru það sem á að vinna í ráðuneytinu? Áform ráðherra sýnast án tilefnis en hafa þegar skapað mikla óvissu um verkefni stofnunarinnar, gætu haft í för með sér aukinn kostnað og núverandi starfsmenn, sem eru yfir 80, eru í fullkominni óvissu um hag sinn og atvinnu. Þá hafa starfsmenn greint frá mjög takmörkuðu samráði við þá.