151. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[14:28]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Það er rétt, frumvarpið er ekki komið inn í þingið en það er komið inn á samráðsgátt stjórnvalda þar sem er bæði löng tilkynning og þar fylgir líka spurt og svarað, m.a. svar við því: Hvert er markmið laganna? Hvað verður um Nýsköpunarmiðstöð? Hvað verður um eignarhlut Nýsköpunarmiðstöðvar í fyrirtækjum? Hvað eru Nýsköpunargarðar? Hvernig verður nýsköpun á landsbyggðinni efld? Hvað verður um stuðning við frumkvöðla? Hvað verður um rannsóknir og prófanir í byggingariðnaði? Hvert færist verkefni efnagreininga? Hvert flyst starfsemi Evrópumiðstöðvar og hvað verður um Rb-blöðin?

Það er alveg rétt að svona verkefni fylgir óvissa. Það er einn af göllunum við að fara í slíkt verkefni. En það er alveg klárt að við erum auðvitað með frumvarpinu að forgangsraða verkefnum í þágu nýsköpunarumhverfisins, umhverfis sem hefur tekið stakkaskiptum á undanförnum árum og frumvarpið tekur mið af því. Nýsköpunarmiðstöð hefur vissulega gegnt mikilvægu hlutverki. Sum verkefni þar munu einmitt þess vegna halda áfram og hægt er að finna þeim nýjan stað.

Við erum mjög langt komin með allt skipulag, eins og sést á frumvarpinu. Við tilkynntum þetta sem áform í febrúar til þess að geta átt samtal og samráð við alla hlutaðeigandi aðila. Ég hef átt fundi með starfsmönnum. Við höfum að mínu viti haldið nokkuð vel um þann þátt málsins og starfsmenn hafa fengið upplýsingar meðfram verkefninu. En auðvitað er það þannig að einhverjir eru enn þá í óvissu. Einhverjir munu flytjast með verkefnum. Einhverjir eru einfaldlega að ljúka sínum starfsaldri. Einhverjir eru í óvissu.

Það er partur af því að vera með skýra sýn fyrir stóra málaflokka að þora líka að taka ákvarðanir sem eru umdeildar og óvissa fylgir, einhver óþægindi fylgja. Ég hef litið á það sem hlutverk mitt að taka til afgerandi aðgerða og taka stórar ákvarðanir með hliðsjón af nýsköpunarstefnu fyrir Ísland sem er einmitt m.a. grunnurinn að þessu. Nýsköpunargarðar eru í mínum huga mikið framfaraskref sem hefur verið rætt um í ofboðslega langan tíma, að tengja betur saman atvinnulíf og háskólasamfélagið til að taka betur utan um sprota (Forseti hringir.) og sjá til þess að það sé enn meiri gerjun og góðir hlutir muni gerast. Ég hlakka mjög til að koma með þetta inn í þingið og eiga nánara samtal við þingmann um það.