fjármálaáætlun 2021--2025.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Hæstv. ráðherra átti eftir að svara hvaða verkefni nákvæmlega það eru sem eru núna á hendi Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og á að vinna í ráðuneytinu. Hvaða verkefni á að vinna í ráðuneytinu? Hver á að flytja þangað? Varðandi óvissuna þá er hún sérstaklega mikil út af þessum veirufaraldri. Hæstv. ráðherra finnst afskaplega gaman að taka djarfar ákvarðanir en þær þurfa auðvitað að vera vel ígrundaðar. Það þýðir ekkert að ana út í einhverja óvissu og setja 80 starfsmenn í fullkomna óvissu. Það þýðir ekki þótt það sé gaman að breyta og gaman að gera eitthvað nýtt. Ég ítreka þessar tvær spurningar, hvort þetta sé rétti tíminn núna og hvaða verkefni það eru sem á að vinna í ráðuneytinu.
Ég ætla líka að koma að öðru málefni sem er á vettvangi ferðamála og það er varðandi leiðsögumenn. Ég tel að núna, þegar ferðamannaiðnaðurinn er í ládeyðu, ætti að vera rétti tíminn til að undirbúa ferðaþjónustuna undir vonandi þá sveiflu sem verður aftur hjá okkur í ferðamennsku, nota þetta hlé til að undirbúa hana. Ferðaþjónustunnar bíða mikilvæg verkefni og mikil verkefni þegar úr rætist. Við eigum marga vel menntaða og reynda leiðsögumenn. Víða erlendis tíðkast að gerð sé krafa um innlenda leiðsögumenn en slík er ekki raunin hér. Er ráðherra tilbúin að undirbúa í samráði við Félag leiðsögumanna kröfur um íslenska leiðsögumenn, búa til kröfur sem gerðar verði til þeirra? Er ráðherra tilbúin að vernda starfsheiti leiðsögumanna með því að vinna að og samræma kröfur um menntun þeirra? Ég vil benda á að hér á landi eru ýmis svæði og árstíðir (Forseti hringir.) sem krefjast kunnáttumanna í leiðsögn. Við höfum orðið vitni að því að það hefur misfarist (Forseti hringir.) þegar þar eru óreyndir menn á ferðinni. Þetta fjallar um öryggi ferðamanna og upplifun af landinu.