151. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[14:33]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Fyrst til að svara síðari spurningu þingmannsins þá er það nú þegar í undirbúningi. Sú vinna er í gangi að setjast niður með leiðsögumönnum og finna leiðir til þess að marka ákveðnar kröfur til mismunandi ferða. Ég mun ekki fjölga lögverndun starfsheita en það er alveg ljóst að ferðir eru mjög mismunandi og eðlilegt að gera mismunandi kröfur til þeirra. Sú vinna er nú þegar í gangi, þannig að svarið við þeirri spurningu er já.

Varðandi hina spurninguna um Nýsköpunarmiðstöð er ég að sjálfsögðu ekki að ana út í nokkurn skapaðan hlut og engin tilhlökkun hjá mér þegar starfsmenn upplifa óvissu. Það er hins vegar alrangt að það séu 80 starfsmenn sem upplifa óvissu núna. Þeir eru töluvert mikið færri og verkefnið er einfaldlega stærra en svo að það geti staðið og fallið með þeirri óvissu. Við erum að stórefla stuðning við nýsköpun um landið allt og það skiptir landsbyggðina mjög miklu máli. Höfuðborgarsvæðið hefur tekið sérstaklega miklum breytingum en það er áfram stærra verkefni fyrir höndum úti á landi.

Hvað varðar eflingu ráðuneytisins erum við í dag með eitt og hálft stöðugildi í nýsköpun. Nýsköpun er risastórt mál sem fer um alla kima stjórnkerfisins og samfélagsins. Það er einfaldlega kominn tími til þess að ráðuneyti nýsköpunarmála sé sterkara en það að hafa eitt og hálft stöðugildi til að sinna öllum þeim verkefnum sem eru milli allra ráðuneyta í raun, risastórum verkefnum; samskiptum við Norðurlöndin, samskiptum við Evrópu, samskiptum við ýmiss konar sjóði, aðrar stofnanir, fyrirtæki o.s.frv. Hluti af áframhaldandi starfsemi áfram og þau verkefni sem munu áfram lifa verða einmitt líka úti á landi. Það hvernig fyrirkomulagið verður nákvæmlega, hvort það verða þá starfsmenn ráðuneytis eða bara einhver sérstök störf án staðsetningar eða verkefnastofa á landsbyggðinni, er í skoðun. En stóra verkefnið er m.a. það að stórefla stuðning við nýsköpun úti á landi sem í mínum huga er ofboðslega mikilvægt verkefni.