151. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[14:35]
Horfa

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf):

Herra forseti. Það er ýmislegt fróðlegt í þessum ágætu fjárlögum og, eins og hæstv. ráðherra reifaði hér áðan, ýmislegt sem er jákvætt. En því miður er líka margt síðra, eins og svo oft. Mig langar að byrja á að ræða við hæstv. ráðherra um það sem hún lauk síðasta andsvari á, þ.e. um nýsköpun og nýsköpun á landsbyggðinni.

Ég sé því miður ekki í þessari áætlun hvernig ráðherra ætlar að efla og styðja við nýsköpun úti á landi. Rætt er um að efla nýsköpun á landsvísu með sérstökum framlögum til verkefna á landsbyggðinni. En hvað er um að ræða þar? Erum við að tala um enn einn sjóðinn? Hvaða upphæðir erum við að tala um? Hvernig hyggst hæstv. ráðherra tryggja aðgengi að atvinnu og nýsköpunarráðgjöf? Það er vissulega fagnaðarefni að enn eigi að bæta í ýmsa nýsköpunarsjóði og það er gríðarlega mikilvægt, herra forseti. En eitt af því sem við höfum rætt áður er staða landsbyggðarinnar þegar kemur að styrkjaúthlutunum úr sjóðum Rannís. Þar hallar mjög á verkefni utan höfuðborgarsvæðisins. Ein kenningin er sú að það vanti betri stuðning við frumkvöðla þar. Hvernig ætlar hæstv. ráðherra að bæta úr því?

Eitt af því sem hæstv. ráðherra hefur kynnt í tengslum við lokun Nýsköpunarmiðstöðvar er að setja á fót ráðuneytisstofnun á Akureyri. Ég spyr: Stendur það enn til? Þess sér ekki merki í fjármálaáætluninni. Og að lokum: Telur hæstv. ráðherra mögulega ástæðu til að endurskoða nýsköpunarstefnu Íslands í ljósi breyttra aðstæðna? Þurfum við ekki enn meira en nokkru sinni fyrr á öflugu stoðkerfi að halda við frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtæki á Íslandi? Í því samhengi langar mig að nefna, herra forseti, þá áhugaverðu stöðu að nánast ekkert er rætt um stuðning við ferðaþjónustuna vegna Covid-19 og raunar eru framlög til Ferðamálastofu skorin niður þó að vissulega séu settir auknir fjármunir í Framkvæmdasjóð ferðamanna og fleira, sem er vel. En það hljóta að vera vonbrigði að ekki sé meiri stuðningur við að efla stoðkerfi ferðaþjónustunnar í þessari áætlun.