fjármálaáætlun 2021--2025.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurningarnar og tek undir þegar Tækniþróunarsjóður er nefndur sérstaklega og úthlutanir þaðan út á land. Það er í raun óásættanlegt hve lágt hlutfall fer þangað og það er m.a. vegna þess að umsóknir sem skila sér þaðan eru ekki nægilega margar. Það er ekki þannig að árangur þeirra umsókna sé miklu lakari en annarra. Við þurfum einfaldlega að spyrja okkur: Hvers vegna er það? Og svarið sem við höfum komist að er að frekari jarðveg og stuðning vanti, sem réttlætanlegt er að hið opinbera sinni að einhverju leyti, til að auka líkur á því að fleiri umsóknir skili sér.
Það er vissulega rétt að við erum að hugsa um og vinna að því að koma á fót verkefnasjóði. Það er helst kallað eftir því og ég hef viljað geta séð þá krafta leysast úr læðingi sem eru vissulega úti um allt land. Við erum með sóknaráætlanir, þær eru sterkar, þær eru unnar á forsendum svæðanna og ég vil tengja þennan sjóð sóknaráætlunum landshlutanna. Landshlutasamtökin eru þess vegna líka viðmælandi okkar. Sveitarstjórnarstigið hefur tekið við sér þegar við höfum sagt frá þessum áformum. Þar er mikill áhugi. Það spretta upp alls konar hugmyndir, ýmist á vegum landshluta eða samtaka sem m.a. tala um að auka frekar við stuðning í atvinnuþróun og nýsköpun. Auðvitað er ákveðinn munur á atvinnuþróun og nýsköpun. Úti á landi er oft um að ræða töluverða atvinnuþróun líka. Það skiptir máli að þetta sé gert og ég vona að okkur takist að grípa allar þær sterku hugmyndir sem eru að verða til úti á landi. Þess vegna skiptir máli að vera með þennan sjóð en ekki algjöra miðstýringu á því hvernig eigi að skipta fjármununum.
Hér er sagt að það þurfi einmitt enn meiri stuðning og hvort endurskoða þurfi nýsköpunarstefnu. Ég hef ekki séð tilefni til að gera það enda er allt sem við gerum í miklu samhengi við nýsköpunarstefnuna. Við erum jú að setja í það meiri fjármuni, samanber þessa fjármálaáætlun, líklega meira heldur en nokkurn tímann hefur sést. Það er í takt við áherslur ríkisstjórnarinnar, í takt við áherslur Alþingis, í takt við áherslur nýsköpunarstefnunnar og svarið við þeirri kreppu sem við erum í og hvernig við ætlum að vinna okkur út úr henni.