151. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[14:40]
Horfa

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Hæstv. ráðherra er greinilega sammála mér um að auka þurfi stuðning við nýsköpun úti á landi. Það er erfitt að sjá hvernig á að gera það einfaldlega með einhverjum verkefnasjóði. Ég held að miklu meiri stuðning þurfi við svæðin í formi ráðgjafar og fólks.

Í síðara andsvari langaði mig til að ræða við hæstv. ráðherra um orkumálin. Það er fagnaðarefni að verið sé að taka skref í áttina að jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku á landsbyggðinni. En mér er algjörlega fyrirmunað að skilja af hverju var ekki farið alla leið og ákveðið að fulljafna þennan mun eins og kveðið er á um í stjórnarsáttmálanum. Það er í raun ákveðið metnaðarleysi og ég hefði haldið, miðað við hve lítið vantar upp á, að skynsamlegt hefði verið að fullklára þetta. Ég spyr því hæstv. ráðherra: Af hverju var ákveðið að gera það ekki?

Þá hef ég áhyggjur af því að þessi leið hafi verið valin, þ.e. að hækka jöfnunargjald, framlög úr ríkissjóði, í stað þess að fara þá leið sem lögð var til í skýrslu starfshóps um raforkuflutning í dreifbýli, þ.e. að taka upp eina gjaldskrá fyrir landið allt, svipað og gert var með símann á sínum tíma. Við búum saman í þessu víðfeðma landi og það er óþolandi að íbúar sitji ekki við sama borð þegar kemur að búsetu og atvinnusköpun. Ég spyr því: Af hverju var sú leið ekki valin? Hefur hæstv. ráðherra engar áhyggjur af því að leiðin sem ákveðið er að fara muni hafa neikvæð áhrif á smærri stórnotendur, þ.e. kaupendur að t.d. 5–10 MW sem þurfa að kaupa raforkuna af dreifiveitunum? Það hlýtur að hafa veruleg neikvæð áhrif á samkeppnishæfni þeirra og möguleika til vaxtar þegar jöfnunargjaldið er reiknað inn í. Hvernig ætlar hæstv. ráðherra að lagfæra þann vanda?

Þá langar mig að lokum, herra forseti, að spyrja hæstv. ráðherra hvort hún telji þá mælikvarða sem settir eru fram um hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa í samgöngum annars vegar og hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa í sjávarútvegi hins vegar vera nægjanlega metnaðarfulla?