fjármálaáætlun 2021--2025.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):
Herra forseti. Þetta eru allmargar spurningar en ég geri mitt besta til að svara. Fyrst varðandi það af hverju ekki var farin sú leið að sameina í eina gjaldskrá: Ég var hrifin af þeirri hugmynd fyrst um sinn. Við könnuðum hana töluvert. Niðurstaðan er hins vegar sú að gagnsæi gagnvart neytendum minnkar og hvati veitna til hagræðingar minnkar sömuleiðis. Það yrðu millifærslur úr sameiginlegum sjóðum sem Orkustofnun myndi stýra sem krefst aukins eftirlits með kostnaði veitna og þyngri stjórnsýslu. Þess vegna var það í raun samdóma álit að slíkar efasemdir væru um það að ákveðið var að fara aðra leið. Þessi leið var því klárlega skoðuð. Það er rétt að með þessu förum við í 85% jöfnun en síðan eykst fjármagnið áfram á næstu árum.
Það hefði auðvitað verið ljómandi fínt að ná fullri jöfnun en það er ofboðslega mikið af nýjum peningum í fjármálaáætlun, peningum sem eru raunverulega ekki til en eru líka ákveðið hagstjórnartæki. Þetta er mikið sanngirnismál þannig að ég er mjög ánægð með að farið sé úr 50% jöfnun í 85% sem síðan eykst áfram. Ég myndi fagna því mjög ef þingið fyndi leiðir til að fara í 100%. En þetta er auðvitað ofboðslega mikil breyting fyrir landsbyggðina alla og, eins og ég hef oft nefnt, er það einn stærsti gallinn á raforkukerfinu að þetta sé staðan og í raun að ekki hafi verið gert það sama og með símann á sínum tíma, að þetta yrði bara jafnt alltaf enda verður raforkan til þarna og ef við tölum um frelsi til búsetu þá er þetta raunverulegt mál um frelsi til búsetu.
Varðandi ferðamálin sem ég náði ekki að koma inn á áðan birtast þau úrræði sem komið hafa fram auðvitað annars staðar en hér og þau úrræði skipta öllu máli fyrir ferðaþjónustuna. Ég nefndi að við erum með þennan stefnuramma. Hann stenst Covid-kreppu. Við erum að bæta í ákveðna uppbyggingu innviða, bæði í landsáætlun, Framkvæmdasjóði og varðandi fyrirmyndaráfangastaði. Við munum eiga samtal við Ferðamálastofu um aukin verkefni sem hún hefur þurft að standa í (Forseti hringir.) núna. Aftur snýst verkefnið miklu frekar um að mæta atvinnulífinu og hjálpa því að komast í gegnum þetta heldur en nákvæmlega hversu margar krónur fara í stoðkerfi ferðaþjónustunnar. Við erum auðvitað líka að reyna að nýta tímann vel, bæði í minni verkefni og t.d. í að þróa markaðsstofur yfir í áfangastaðastofur.