fjármálaáætlun 2021--2025.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Já já, ég veit af samkeppnissjóðunum. Fyrir mér er spurningin að þarna sé eitthvert „bæði og“ en ekki „annaðhvort eða“. Ég heyri það á hæstv. ráðherra að verið er að vinna í þessu. Komist þetta á sinn stað í Húsnæðis- og mannvirkjastofnun er ég ánægður og ég vona þá að það sem ég kalla óháðan þátt byggingarrannsókna verði áfram til staðar.
Mig langar að fjalla um hitt sviðið hjá Nýsköpunarmiðstöðinni, þ.e. efnis-, líf- og orkutæknisvið þar sem starfa 17 manns. Þar eru greiningar framkvæmdar. Þar er ýmiss konar framþróun og nýsköpun í gangi. Þar er ein af fáum rafeindasmásjám landsins rekin. Þetta vil ég líka sjá að hluta til sem óháða starfsemi. Þarna er verið að skoða lífmassa, nýtingu hráefna, stóriðjuna, hagnýta efnistækni og örtækni. Það er verið að kanna lækninga- og stoðtækni, nýtingu lífrænna auðlinda og nýtingu dauðra náttúruauðlinda. Þarna er t.d. verið að þróa basaltþræði, mjög verðmætt efni sem nýtist í sérstakar vörur. Gullleitin á Íslandi tengist þessari starfsemi.
Á sama hátt og ég spurði áðan myndi ég gjarnan vilja fá svör frá hæstv. ráðherra um það hvernig þessari starfsemi verður fyrir komið? Auðvitað geta verkfræðistofur sinnt einhverju af þessu og háskólarnir einhverju. En það er mjög mikilvægt að óháði þátturinn, þ.e. það sem byggist á mælingum eða eftirliti, samhengi í framþróun, sé vistað á einhverjum stað sem er annaðhvort háskóli eða stofnun. Ég vil gjarnan heyra það frá hæstv. ráðherra.