fjármálaáætlun 2021--2025.
Virðulegi forseti. Ég vil spyrja hæstv. atvinnumálaráðherra um atvinnuleysisbætur, hvort hún telji það letjandi fyrir vinnumarkaðinn að hækka grunnatvinnuleysisbætur, hvort hún sé sammála hæstv. fjármálaráðherra, Bjarna Benediktssyni, um að það muni virka letjandi á atvinnuleit þeirra sem þiggja atvinnuleysisbætur að hækka þær. Sömuleiðis vil ég spyrja hæstv. nýsköpunarráðherra hvort hún telji að það sé nýsköpun til góða að hafa jafn miklar takmarkanir og skerðingar á atvinnuleysisbótum og raun ber vitni, þ.e. að fólk á bótum geti nánast ekki með neinu móti tekið að sér ný verkefni eða prófað nýja hluti eða spreytt sig í nýsköpun af ótta við að missa bæturnar. Það eru tvær spurningar til hæstv. ráðherra. Telur hún að það virki letjandi fyrir atvinnuleitendur að fá aðeins hærri atvinnuleysisbætur en þær smánarlegu bætur sem nú þegar eru í gildi? Þar er ég að tala um strípaðar atvinnuleysisbætur, grunnatvinnuleysisbætur, ekki framlengingu á tekjutímabilinu. Ég spyr sömuleiðis hvort hún telji að það gagnist nýsköpun, eða mögulega ekki, að hafa jafn miklar og stórar skerðingar á atvinnuleysisbótum og raun ber vitni.