fjármálaáætlun 2021--2025.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):
Herra forseti. Fyrst varðandi fyrri spurninguna, hvort ég sé á þeirri skoðun að hærri grunnatvinnuleysisbætur séu letjandi sem slíkar: Að sjálfsögðu er það þannig að fólk er ekki að gamni sínu á atvinnuleysisbótum. Það er enginn sem hefur það ljúft og gott á grunnatvinnuleysisbótum. Það eru ekki aðstæður sem er hvetjandi að vera í, ég myndi segja að því væri frekar öfugt farið. Ég er hins vegar sammála þeirri forgangsröðun sem fjármálaráðherra hefur margoft nefnt, að það skipti öllu máli að fjölga störfum, að ná upp fyrri krafti þegar kemur að störfum. Það er einkageirinn sem gerir okkur kleift að standa undir öllum þeim velferðarkerfum sem við höldum uppi, og atvinnuleysisbótakerfið er inni í þeim hring.
Varðandi það hvort fólk hafi næg úrræði til að gera annað og spreyta sig á atvinnuleysisbótum þá eru vissulega ýmis úrræði innan kerfisins, hvort sem það eru menntaúrræði eða úrræði Vinnumálastofnunar í samvinnu við Nýsköpunarmiðstöð, þ.e. að fólk sem er á atvinnuleysisbótum og hefur verið það í skamman tíma geti farið inn í fyrirtæki, sérstaklega inn í nýsköpunarfyrirtæki. Allt skiptir þetta máli. Ef engin slík skilyrði væru og allir væru frjálsir til að gera hvað sem er — ég geri ráð fyrir að þessar reglur séu til að geta haldið utan um kerfið — þá væri bara einfaldara að hafa borgaralaun sem ég veit að Píratar aðhyllast. Þá þyrftum við ekki að vera að ræða rammann utan um kerfin. En einkageirinn er það sem þarf að vaxa og ég myndi segja að það væri algjört forgangsatriði að ná honum upp til að eiga fyrir þeim bótakerfum sem við höfum. (Forseti hringir.) Við erum farin að sjá fjármuni í útgreiðslu atvinnuleysisbóta sem við höfum ekki séð áður. Við verðum að ná okkur út úr þeirri stöðu vegna þess að við getum ekki staðið undir því í lengri tíma.