151. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[14:59]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Mig langar til að spyrja ráðherra hvernig hún telur stefnumótun hins opinbera virka, hvernig hún telur að hún eigi að virka. Í lögum um opinber fjármál, sem við ræðum hér í tengslum við fjármálaáætlun, segir mjög skýrt hverjar lágmarkskröfurnar eru um forgangsraðaðan verkefnalista, um kostnaðar- og ábatagreiningu verkefna og valkostagreiningu. Nýlegt dæmi um stefnumótun hins opinbera í nýsköpun fær mig til að efast um að ráðherra sé að sinna hlutverki sínu á viðeigandi hátt. Miðað við fjármálaáætlunina og lög um opinber fjármál leyfi ég mér að efast um að nokkur ráðherra sé að sinna hlutverki sínu í opinberri stefnumótun á viðeigandi hátt, en dæmið um Nýsköpunarmiðstöð Íslands er bara svo augljóst í því samhengi.

Í febrúar sl. tilkynnti ráðherra að leggja ætti niður Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Síðan þá hefur spurningum verið beint til ráðherra og ráðuneytis er varða það á hvaða forsendum ráðherra tók þá ákvörðun. Svörin hafa verið frekar óljós. Sem dæmi að spara mætti stjórnsýslukostnað og veita meira fé beint í nýsköpunarverkefni, og það væri frábært ef það væri satt. Því var spurt í framhaldinu hvaða gögn ráðherra hefði máli sínu til stuðnings. Enn sem komið er hafa þau gögn ekki borist. Það lítur því út fyrir að ráðherra hafi fyrst ákveðið að leggja Nýsköpunarmiðstöð Íslands niður og svo reynt að finna réttlætingar og rök fyrir því. Þetta er nákvæmlega eins og á síðasta kjörtímabili þegar þáverandi menntamálaráðherra, og flokksbróðir nýsköpunarráðherra, ætlaði að sameina Fjölbrautaskólann við Ármúla og Tækniskólann af því að það væri svo hentugt. Við nánari skoðun stóðust þær fullyrðingar ráðherra ekki.

Sporin hræða þegar ráðherrar Sjálfstæðisflokksins taka svona ákvarðanir og því spyr ég ráðherra: Telst það vera góð stefnumótun að taka ákvörðun fyrst og finna svo rök fyrir þeirri ákvörðun?