151. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[15:01]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Varðandi beiðni um ákveðnar upplýsingar veit ég að það mál er í ferli og þeim upplýsingum verður komið til atvinnuveganefndar. Varðandi það á hvaða forsendum og gögnum og vinnu við byggjum þessi áform þá er það alveg rétt, sem hv. þingmaður segir, að ég hef lagt áherslu á að stuðningur inn í nýsköpunarumhverfið fari í meiri mæli í verkefnin sjálf. Það er það sem við erum að gera. Við erum einmitt að setja fjármuni í verkefnin sjálf með því að setja aukna fjármuni í byggingarannsóknir, koma á fót nýsköpunargörðum, efla nýsköpun úti á landi, setja fé í verkefnasjóði. Í stað þess að fjölga einfaldlega opinberum starfsmönnum víða um land viljum við frekar gera hlutina svona, þannig að við getum tryggt betur að fjármunirnir fari í verkefnin. Þannig leysum við frekari krafta úr læðingi. Við erum samhliða þessari ákvörðun að skila 350 milljónum inn í ríkissjóð af þeim 700 sem hafa farið til stofnunarinnar. Mér finnst það bæði gott skref og tímabært.

Ég vildi að við sæjum það oftar að þegar við finnum ný verkefni, ný úrlausnarefni, berjumst fyrir nýjum fjármunum og setjum fullt af peningum í alls konar ný verkefni á sviði nýsköpunar, þá sé líka hægt að líta á það sem fyrir er og fara gaumgæfilega yfir það. Ég ákvað að gera þetta svona, að kynna þetta fyrst sem áform og svo tæki samtal við og samráð og verkefnin myndu taka á sig mynd með tíð og tíma, í stað þess að vera með þetta í lokuðum hópum og kynna allt með pompi og prakt með skömmum fyrirvara. Það gerir að verkum að ekki hefur verið hægt að svara öllum spurningum um leið og þessi áform voru kynnt í febrúar. En það er vissulega þannig að við byggjum þetta á vinnu, stefnu okkar, samtölum við marga hagaðila innan úr kerfinu o.s.frv., fyrir utan áherslur og stefnur annarra úti í samfélaginu sem styðja við þessa þróun. Það er eðlilegt að svona ákvarðanir séu endurskoðaðar þegar umhverfið er á eins miklum hraða og nú er.