fjármálaáætlun 2021--2025.
Virðulegi forseti. Ég fagna því að fá tækifæri til að ræða fjármálaáætlun við hæstv. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og um þau málefnasvið sem ráðherra ber ábyrgð á en þar er af nógu að taka. Mig langar að byrja á að ræða um það sem í daglegu tali er kallað jöfnun flutningskostnaðar raforku en heitir dreifikostnaður raforku á nákvæmara máli, sem ég vil fullyrða að sé eitt stærsta atvinnuþróunarmálið í strjálbýli á Íslandi. Það væri áhrifaríkasti stuðningurinn við rekstur ferðaþjónustu í strjálbýli ef hægt væri að ná fullri jöfnun á dreifingu raforku. Mig langar þess vegna að spyrja hæstv. ráðherra aðeins út í framtíðarsýnina, hvenær stefnt er að því að dreifikostnaðurinn verði að fullu jafnaður og, þrátt fyrir að hún hafi komið inn á það í svari áðan, hvers vegna ekki var farið í eina gjaldskrá varðandi dreifinguna. Mig langar að biðja um að hæstv. ráðherra fari aftur yfir þetta vegna þess að ég held að það verði aldrei jöfn tækifæri til atvinnusköpunar um land allt nema það verði ein gjaldskrá fyrir dreifingu raforku. En ég fagna þeim skrefum sem verið er að stíga núna.
Síðan langaði mig að tala aðeins um jarðstrengjavæðingu dreifikerfisins og þrífösun raforku og orkuöryggi sem fylgir því. Ég óska eftir því að ráðherrann fari yfir áætlunina sem er fram undan. Hversu langt er áætlað að við verðum komin á árinu 2025 í jarðstrengjavæðingu og þrífösun raforku?