151. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[15:06]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Varðandi eina sameiginlega gjaldskrá þá var það skoðað ítarlega. Ég var fyrst um sinn á þeirri skoðun að það væri einfaldasta leiðin af því að það er mjög skiljanlegt að það sé ein sameiginleg gjaldskrá í dreifingu raforku eins og í svo mörgu öðru. En það var skoðað ítarlega og niðurstaðan var að gagnsæi gagnvart neytendum minnki og hvati veitna til hagræðingar minnki. Hvati dreifiveitna til ótímabærra óheftra framkvæmda gæti aukist án þess að ég sé að fullyrða hreint og klárt um það. Það þyrfti að setja upp kerfi fyrir millifærslur úr sameiginlegum sjóði sem Orkustofnun myndi stýra sem krefst aftur aukins eftirlits með kostnaði veitna og þyngri stjórnsýslu. Með allt þetta í huga var niðurstaðan að við skyldum leita annarra leiða.

Hins vegar náum við ákveðnu hámarki í fjárfestingarþörf í dreifikerfinu á næstu fjórum til fimm árum og þá ætti þörfin á jöfnunargjaldi að fara lækkandi að nýju. Við erum auðvitað alltaf með þetta jöfnunargjald í lögunum sem í dag skilar um 980 milljónum. Við getum þá mögulega með tíð og tíma annaðhvort lækkað það eða það sem tekið er beint af fjárlögum. Við erum að taka risastórt skref núna og ef við hækkum jöfnunargjald með tilliti til verðlags þá erum við komin í 85% af jöfnun núna strax. Á næstu árum hækkar þessi upphæð síðan lítillega. Ég get því ekki alveg sagt nákvæmlega til um hvenær við myndum ná fullri jöfnun. En við erum svo gott sem að ná því eftir þetta stóra skref og svo bætist í á komandi árum.

Varðandi þrífösun rafmagns erum við að fara í meiri háttar framkvæmdir núna. Og með þessari nálgun, að greiða flýtigjald, er okkur í raun að takast að fara í jarðstrengjavæðingu í dreifikerfinu á fimm árum í stað 15. Þannig að við áætlum (Forseti hringir.) að ná því á þeim tíma sem er mikið framfaraskref því að ekki er langt síðan menn sáu ekki fram úr því (Forseti hringir.) að geta klárað verkefnið nema á 15 árum en ekki fimm.