151. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[15:08]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin og fagna því mjög að okkur sé að takast að hraða þrífösuninni og jarðstrengjavæðingu dreifikerfis raforku, en ítreka að mér finnst afar mikilvægt að það sé sama gjaldskrá eða sami kostnaður um land allt.

Þá langar mig að snúa mér aðeins að ferðaþjónustunni og flugþróunarsjóði. Mig langar eiginlega bara að spyrja: Hvað varð um flugþróunarsjóð? Er eitthvað í kerfinu núna sem styður við þróun flugs inn í nýjar gáttir, hvort sem það væri farþegaflug eða vöruflutningar, þegar flug hefst að fullu á nýjan leik, hvenær svo sem það verður?

Síðan langaði mig aðeins að skipta um gír og fara í annað. Á síðasta ári fjölluðum við um frumvarp um félög til almannaheilla. Því var vísað frá þinginu, aftur til ríkisstjórnar og mig langar að nota tækifærið og spyrja: Hvað varð svo um það? Ég sé það ekki í fljótu bragði á þingmálaskránni. Kannski leynist það þar undir einhverju nýju heiti.

Svo er það nýsköpunin. Ég held að þar sé verið að gera mjög margt gott. Það er verið að bæta við fjármagni í nýsköpunar- og samkeppnissjóði og fleiri sjóði. En ég hef samt svolitlar áhyggjur af því sem við höfum kallað atvinnuþróun, hvort nægir hvatar séu til fjárfestinga í atvinnuvegunum og aukinnar verðmætasköpunar, meiri gjaldeyrissköpunar, við þær aðstæður sem eru núna. Sér ráðherrann einhverjar leiðir til þess að bæta þar í?