fjármálaáætlun 2021--2025.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):
Herra forseti. Fyrst varðandi rafbílana. Þegar við viljum, að ákveðnum tíma liðnum, sjá full orkuskipti á landi viljum við að sjálfsögðu að það eigi líka við um þá sem þurfa sérútbúnar bifreiðar eða bifreiðar í ákveðinni stærð eða annað slíkt, til að þetta sé fyrir alla. Til að ná orkuskiptunum að fullu þurfum við því að tryggja það. Ég get ekki sagt að það sé í sérstakri skoðun á mínu borði en ég tek þennan punkt til mín. Ákveðinn hópur úthlutar styrkjum og við erum farin að styrkja ákveðna atvinnugeira og ákveðna hópa. Þetta á klárlega heima þar undir.
Varðandi markaðsátakið var settur í það 1,5 milljarðar kr. en við höfum ekki ráðstafað nema litlum hluta, líklega kannski u.þ.b. 20% af fjárhæðinni. Ég myndi því segja að við þyrftum ekki frekari fjármuni í verkefnið núna. En það verður auðvitað mikil þörf á því þegar þar að kemur. Þegar við tókum ákvörðun um þetta sáum við ekki fyrir að þetta yrði svona langur tími. Við vitum ekki enn þá hvenær raunhæft er að fara af stað. Hluti af verkefninu er líka að tryggja jákvæða ímynd landsins, að við séum að koma ákveðnum skilaboðum til fólks sem þráir auðvitað mjög að komast í ferðalög þegar aðstæður leyfa. Þetta er mikilvægt verkefni en fjárhæðinni er enn að mestu óráðstafað.
Stuðlagil fékk töluverða fjármuni núna úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða sem skiptir miklu máli. Það er dæmi um stað þar sem ýmsar áskoranir blasa við vegna þess að þar eru mismunandi landeigendur, það þarf að vera sameiginleg sýn og sameiginleg forgangsröðun. Allt tekur þetta tíma og á meðan höfum við verið að taka á móti öllum þessum fjölda fólks. Nú er ofboðslega góður tími til að setjast niður í ró og næði og reyna að komast að einhverri sátt um það hvernig eigendur vilja sjá fyrir sér uppbyggingu staðarins. Við höfum komið því skýrt á framfæri að við séum opin fyrir samtali og varðandi úthlutun úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða (Forseti hringir.) vitum við að þetta er einn helsti segullinn á því svæði. Við viljum að hann sé byggður upp einmitt til að tryggja náttúru og tryggja öryggi fólks. Þess vegna er gott að þau þar hafi fengið úthlutað. Og það þarf að tryggja að eigendur hafi sameiginlega sýn vegna þess að ríkið á ekki landið.