151. löggjafarþing — 6. fundur,  8. okt. 2020.

mannabreytingar í nefndum.

[10:32]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hefur bréf, dagsett í dag, frá formanni þingflokks Miðflokksins um mannabreytingar í nefndum þingsins, samanber 16. gr. þingskapa. Þorsteinn Sæmundsson tekur sæti Önnu Kolbrúnar Árnadóttur sem aðalmaður í allsherjar- og menntamálanefnd og Anna Kolbrún Árnadóttir verður varamaður í þeirri nefnd.

Þessar mannabreytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.