framlög til geðheilbrigðismála.
Virðulegi forseti. Í júní tókst okkur hið ómögulega. Alþingi samþykkti algerlega einróma að tryggja aukið aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og festi í lög frumvarp okkar í Viðreisn og fleiri um að fella sálfræðiþjónustu og önnur klínísk meðferðarúrræði undir sjúkratryggingar. Þetta var auðvitað mjög mikilvæg viðurkenning á því að tryggja aðgengi að úrræðum vegna geðræns vanda til jafns við líkamlegan. Við sýndum þarna í verki þvert á flokka að þingið hefur sannarlega metnað til að hugsa til framtíðar. Við leyfðum okkur að taka utan um fólkið okkar og ég viðurkenni fúslega að ég var mjög stolt af þeirri samheldni hér inni. Það er mikilvægt að tryggja forvarnir og fjárfesta í framtíðinni og gera fólki fjárhagslega kleift að leita sér hjálpar. Það er risamál, virðulegi forseti, og nú í miðjum heimsfaraldri hef ég eins og margir fleiri miklar áhyggjur af líðan fólks. Við upplifum aukna einangrun, einmanaleika, ofbeldi, óvissu og ótta um heilsufar, afkomu okkar nánustu. Allt hefur þetta áhrif á sálarlíf þjóðar. Við það bætast svo efnahagslegar áhyggjur og atvinnuleysi sem ristir mjög djúpt. Svo fáum við að sjá fjárlögin og fjármálaáætlun næstu ára og þau eru ekki beint í takti við þessa framsýni þingsins, þvert á flokka. Starfandi heilbrigðisráðherra sagði fyrr í vikunni að heilbrigðisráðherra væri ekki fjármálaráðherra og réði þessu því ekki. Segja má að löggjafinn hafi einróma sent framkvæmdarvaldinu, ríkisstjórninni, mjög skýr skilaboð um forgangsröðun í þetta mál. Því vil ég spyrja: Er ekki alveg örugglega pólitískur vilji ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur að styðja málið alla leið, þetta risastóra, löngu tímabæra mál?