151. löggjafarþing — 6. fundur,  8. okt. 2020.

framlög til geðheilbrigðismála.

[10:36]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég tel að ríkisstjórnin hafi sýnt vilja sinn mjög skýrt í verki með því að á fjáraukalögum ársins 2020 voru 540 milljónir sérstaklega merktar geðheilbrigðismálum. Það virðist sem úrræðið sem þar er undir, þ.e. frekari fjármögnun geðheilbrigðisþjónustu í landinu, hafi ekki þurft á allri þeirri fjárhæð að halda á yfirstandandi ári. Þar spilar auðvitað sterkast inn í sú staðreynd að þetta kemur inn í mitt árið. Við gerum ráð fyrir því að verulegur hluti þessarar fjárheimildar verði enn til staðar á næsta ári. Á næsta ári er sömuleiðis að finna áfram 540 milljóna svigrúm fyrir geðheilbrigðismálin.

Fyrir utan þetta er í fyrirliggjandi fjármálaáætlun heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa með gríðarlega mikinn vöxt. Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa er með um 61 milljarð á upphafsári áætlunarinnar sem vex upp í 68 milljarða. Það er 7 milljarða raunaukning fyrir heilbrigðisþjónustu utan sjúkrahúsa. Þannig eru nú fjármál ríkisins unnin að við erum að vinna í rammafjárlögum og afhendum inn á málefnasviðin gríðarlegt svigrúm fyrir einstök áherslumál sem fagráðherrarnir hafa síðan fengið stóraukið svigrúm til að ráðstafa. Ég sé ekki betur en að með þeirri gríðarlegu aukningu sem hefur orðið til geðheilbrigðismála og verður til heilbrigðisþjónustu utan sjúkrahúsa á komandi árum sé fullnægjandi svigrúm til þess að gera ráð fyrir samningum við sálfræðinga, svo dæmi sé tekið.

En það er eitt að segja að gera eigi slíka samninga. (Forseti hringir.) Annað er að ákveða umfangið og reglurnar sem um það eiga að gilda. (Forseti hringir.) Þarna reynir einfaldlega á forgangsröðun í málaflokknum.