útvarpsgjald og staða einkarekinna fjölmiðla.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra þetta ágæta svar og lýsi yfir ánægju með vilja hans til að opna þetta samtal og umræðu umfram það sem þegar hefur verið gert. Auðvitað eru margar leiðir til að styðja við innlenda einkarekna fjölmiðla og ein þeirra væri t.d. að afnema virðisaukaskatt af áskriftartekjum, svo að einu dæmi sé kastað fram. Hægt væri að eiga við tryggingagjald starfsmanna og fleira slíkt.
En aðeins varðandi svar hæstv. ráðherra þá er staðan auðvitað þannig að með núverandi tekjum af nefskatti og síðan auglýsinga- og kostunartekjum sjáum við að Ríkisútvarpið hefur til ráðstöfunar einhvers staðar í námunda við 6.000 milljónir, sýnist mér, á næsta ári. Slík tala kippir auðvitað úr sambandi öllum sanngjörnum samkeppnissjónarmiðum, ef svo má segja, gagnvart hinum einkareknu miðlum sem standa í slagsmálum á þessum markaði. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra, ef sjónarmiðið er að hér eigi að reka (Forseti hringir.) almannaútvarp með einhverjum hætti, hvort hann telji ekki hægt að (Forseti hringir.) minnka það að einhverju marki frá því sem við horfum á í dag.