tekjuskattur og staðgreiðsla opinberra gjalda.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra svarið. Það er nú bara þannig að menn innleysa hagnaðinn þar sem þeir borga minnst og yfirfæra tapið þar sem þeir borga mest. Ég hef áhyggjur af því að það verði nýtt hér á landi í þeim tilgangi. Þá spyr maður sig um samkeppnishæfni Íslands. Síðan langar mig að koma aðeins að öðru atriði sem ég held að sé mikilvægt í þessu efni, þ.e. allur sá fjöldi tvísköttunarsamninga sem við höfum gert við erlend ríki þar sem skattlagningarvaldið er stundum gefið eftir, en að sama skapi flutt hingað eftir eðli samninga. Hvaða áhrif telur hæstv. ráðherra að þetta frumvarp geti haft á tekjur ríkisins til framtíðar hvað varðar þá tvísköttunarsamninga sem Ísland hefur gert? Spurningin er líka þessi: Er ástæða til að breyta þeim samningum ef þetta frumvarp verður samþykkt? Það kemur ekki fram hvort þess þarf. Síðan væri fróðlegt að fá að vita hver áhrifin eru nákvæmlega á erlenda starfsmenn sem ekki hafa skattalega heimilisfesti hér á landi. Ef þeir stoppa stutt, t.d. bara einn eða tvo mánuði, eru þeir þá skattlagðir erlendis?
Herra forseti. Ég verð að segja, og það er viðurkennt í frumvarpinu, að það er óljóst með áhrifin. Það finnst mér alltaf slæmt, þegar menn eru að ræða skattamál og leggja fram frumvörp í þeim efnum, að það sé óljóst hver áhrifin verði. Talað er um að hugsanlega verði þetta tekjutap ríkisins til að byrja með en svo komi tekjur þegar fram líða stundir. Mér finnst það ekki vera nógu skýrt. Ég ætla að koma aðeins inn á það í örstuttri ræðu á eftir en bið hæstv. ráðherra að svara þessu með tvísköttunarsamninga okkar og skattalega heimilisfesti á erlend verkefni.