151. löggjafarþing — 6. fundur,  8. okt. 2020.

tekjuskattur og staðgreiðsla opinberra gjalda.

4. mál
[11:33]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér er ekki kunnugt um að þetta kalli á neina breytingu á tvísköttunarsamningum. Jafnvel þótt gert væri ráð fyrir óbreyttum lögum um þetta sé ég ekki betur en hér sé um ívilnandi breytingar að ræða sem aldrei myndu kalla á eitthvert uppnám hvað tvísköttunarsamninga varðar. Það er rétt sem hv. þingmaður segir, að við sjáum viðleitni til þess hjá alþjóðlegum fyrirtækjum að haga starfsemi sinni þannig að hún komi sem best út í skattalegu tilliti. Það er engin spurning. Bæði fyrirtæki og einstaklingar hafa sýnt tilhneigingu í gegnum aldirnar til þess að flýja ofsköttun. En ég held að við séum í sjálfu sér ekki að ræða um það hér. Hér erum við kannski meira að tala um að með of stífum reglum hér heima fyrir, sem gætu klagað upp á Evrópska efnahagssvæðið, hafi menn áhyggjur af því að þeir sem ella hefðu haft einhvern rekstur í dótturfélögum annars staðar myndu ekki gera það. Að þessu leyti til er verið að reyna að ryðja úr vegi hindrunum fyrir því að menn starfi á einu og óskiptu Evrópsku efnahagssvæði. Einstaka lönd gætu þannig haft samkeppnislegt forskot um önnur atriði sem myndu leiða til þess að að öllu öðru óbreyttu hefðu menn haft dótturfélag þar, en vegna skattareglna á Íslandi gera menn það ekki. Það eru slík tilvik sem ég held að menn hafi áhyggjur af. Ég ætla að halda því fram að það sé jákvætt fyrir okkur Íslendinga að hafa skattalegt umhverfi sem menn virða fyrir sér og segja: Þetta könnumst við við, þetta gildir líka heima hjá okkur og skattalegu málin á Íslandi eru ekki sjálfstæð hindrun í vegi þess að byggja starfsemina upp þaðan.