151. löggjafarþing — 6. fundur,  8. okt. 2020.

tekjuskattur og staðgreiðsla opinberra gjalda.

4. mál
[11:35]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Herra forseti. Ég ætla ekki að lengja þessa umræðu en vil koma örstutt aftur inn á málið. Eins og komið hefur fram í máli hæstv. fjármálaráðherra er verið að bregðast við kröfu ESA og það er í sjálfu sér gott mál. En ég vil árétta áhyggjur mínar af því að það sé í reynd ómögulegt að meta áhrifin sem þetta frumvarp mun hafa. Það kemur beinlínis fram og ráðuneytið hefur sagt það. Ef ég las þetta rétt munu félög kannski ekki nýta sér heimildina í reynd nema það sé skattalega hagkvæmt og leiði til lægri skattgreiðslu nettó fyrir samstæðuna. Það kann þó að skila sér í sköttum til Íslands sem væru annars greiddir annars staðar. Vonandi er það reyndin. En engu að síður er þetta allt óljóst í frumvarpinu.

Ég er þeirrar skoðunar að það vanti tilfinnanlega betri greiningar á áhrifum frumvarpsins. Ég held að það sé algerlega nauðsynlegt að fara vandlega yfir það í starfi nefndarinnar sem fram undan er. Ég vil hvetja nefndina eindregið til að fara vandlega í saumana á því hvaða áhrif frumvarpið mun hafa. Maður veltir því fyrir sér hvort það sé nægilega vel undirbúið þegar beinlínis er tekið fram að ómögulegt sé að segja til um áhrifin. Og eins og ég sagði áðan getur hagnaður í einu félagi alltaf mætt tapi í öðru félagi.

Ég spurði um það áðan í andsvari við hæstv. fjármálaráðherra hvort hægt væri að flytja skattlagningu milli landa árlega. Hæstv. ráðherra svaraði því ekki, en það er nokkuð sem þarf að skoða vandlega í nefndinni því að það getur skipt verulegu máli. Þessi mál eru flókin. Skattlagning yfir landamæri er flókin. Það er líklegt að stórar erlendar samstæður innleiði skattalegan hagnað þar sem skatthlutfall er lægst. Þá má ætla að þær leitist við að fresta skattlagningu eins og hægt er þar sem skattlagning er mest. Þetta er bara lögmálið í skattaumhverfinu sem við þekkjum og hjá þeim sem sjá um fjármál fyrirtækja. Ég vona svo sannarlega að það sé rétt hjá hæstv. ráðherra að við stöndum ágætlega samkeppnislega séð hvað skatta varðar.

Ég skil alveg þau sjónarmið hjá hæstv. ráðherra að allt sé þetta sama heildin og menn þekki umhverfið hér, sem sé eins og í heimalandi þeirra o.s.frv. Auðvitað skiptir það okkur máli. En ég verð að segja að það hefði verið gott að fá það fram, og að nefndin fari yfir það nákvæmlega, hver ávinningur ríkissjóðs er af þessu í raun og veru. Við stefnum jú að því að fara í öfluga viðspyrnu þegar hagkerfið tekur við sér á ný að loknum veirufaraldrinum. Þetta mál má á að sjálfsögðu ekki draga úr því með einhverjum hætti. Það munar um nánast hverja krónu í ríkiskassann þessa dagana. Fyrirtæki munu skila minna til samfélagsins með þessari samsköttun og ég held að hægt sé að sjá það fyrir. Ég held að það sé líka gott og nauðsynlegt að nefndin fari yfir tvísköttunarsamninga sem við höfum gert við erlend ríki þar sem skattlagningarvaldið er eftir eðli samninganna stundum gefið eftir, en að sama skapi stundum flutt hingað. Og það er spurning hvort ekki þurfi að fara að breyta þeim samningum. Þetta þarf allt að fara yfir.

Ég nefni í lokin, og gerði það einnig í andsvari, hvaða áhrif nákvæmlega þetta muni hafa á erlenda starfsmenn sem ekki hafa skattalega heimilisfesti á Íslandi. Mér finnst vanta, alla vega miðað við það sem ég hef lesið mér til um þetta, að fá það á hreint. Hér eru fjölmargir erlendir starfsmenn sem stoppa stutt við. Verða þeir þá skattlagðir erlendis? Það þyrfti líka að skoða. En ég er alveg sammála hæstv. ráðherra um að auðvitað eigum við að hafa skattalegt umhverfi þannig að það sé aðlaðandi og að við getum laðað til okkar öflug og stöndug fyrirtæki, sem skiptir okkur verulegu máli, ekki síst í því mikla atvinnuleysi sem við stöndum frammi fyrir. Annars vænti ég þess að nefndin fari vandlega yfir málið því að þetta er nokkuð stórt mál. Margt er óljóst um hver áhrif þess verða og það er hlutverk nefndarinnar að fara nákvæmlega yfir það.