151. löggjafarþing — 6. fundur,  8. okt. 2020.

tekjuskattur og staðgreiðsla opinberra gjalda.

4. mál
[11:41]
Horfa

Smári McCarthy (P):

Herra forseti. Mig langar að hrósa því að í frumvarpinu og greinargerð þess eru skýringarmyndir. Það kann að þykja lítið atriði en er til mikillar eftirbreytni, sérstaklega þar sem við erum í rauninni að tala um tiltölulega flókið skattalegt atriði. Ég hef oft í gegnum þingsetu mína endað á því að teikna skýringarmyndir til að reyna að átta mig á því hvaða afleiðingar ákveðnar skattaumgjörðarbreytingar geta haft. Það er mjög gott að hafa myndirnar með, ég fagna því og vil gjarnan að meira verði gert af því.

Eitt af því sem þetta gerir er að mjög auðvelt er að sjá á frumvarpinu að gagnvirkni, það að beita sömu reglu oft, getur haft mjög mikil áhrif. Á bls. 4 eru t.d. tvær skýringarmyndir, annars vegar er tilfelli þar sem móðurfélag er innan lands, dótturfélag erlendis og dótturfélag þess svo innan lands. Ef maður myndi beita reglunni eins og hún kemur fram á skýringarmynd 2, að fyrra dótturfélagið væri í rauninni móðurfélag o.s.frv., er auðvelt að ímynda sér að mjög langar keðjur fyrirtækja gætu orðið til sem samkvæmt þessari breytingu hefðu mögulega samsköttunarmöguleika.

Auðvitað eru öll svona atriði mjög flókin og ég býst við að við munum fara mjög varlega í gegnum þetta í efnahags- og viðskiptanefnd. En mér fannst ástæða til að nefna þetta, bæði vegna þess að það er svo jákvætt að sjá skýringarmyndir, og það er allt of sjaldgæft, og líka vegna þess að gagnvirkar reglur eins og sú sem hér um ræðir, eiga það til að virðast rosalega einfaldar þangað til maður fer að spá í þær í samhengi við stórt hagkerfi og jafnvel mörg stór hagkerfi, eins og tilfellið er þegar maður horfir til allra landa EES og annarra sem hér geta fallið undir.

Ég ætla ekki að fara dýpra í þetta núna. Ég ætla að reyna að hvetja til þess að við förum mjög varlega í þetta mál í efnahags- og viðskiptanefnd í ljósi þeirrar gagnvirkni sem um ræðir. Að öðru leyti hlakka ég til að sinna þeirri vinnu.