breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra. Ég vil koma aðeins inn á mikilvægi þess að ríkissjóður fái allar þær tekjur sem hann á rétt á og þarf svo sannarlega á að halda í þessu árferði og því sem fram undan er. Við þekkjum það öll og það hefur verið rætt hér margsinnis að hallinn á ríkissjóði er gríðarlegur. Nú er verið að setja fjármuni í skattrannsóknir sem er gott og vel. Ég held að fyrir nokkrum árum hafi verið gerð skýrsla sem sýndi að skattsvik gætu verið u.þ.b. 80 milljarðar á ári. Mig langar að heyra hjá hæstv. ráðherra hvort hann telji að þetta sé nægilegt fé í skattrannsóknir, hvort akkúrat á þessum tímapunkti sé ekki nauðsynlegt að setja meira fé í skattrannsóknir og vinna gegn skattsvikum.
Einnig flutti hæstv. ráðherra athyglisverða og góða tölu um bótasvik. Ég er honum algerlega sammála hvað það varðar. (Forseti hringir.) En mig langaði að spyrja hæstv. ráðherra út í hvað hafi verið gert í tíð þessarar ríkisstjórnar og í tíð (Forseti hringir.) hæstv. ráðherra í fjármálaráðuneytinu til að vinna bug á bótasvikum.