breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Varðandi bótasvikin vil ég taka undir það sem hæstv. ráðherra sagði í ræðu sinni áðan. Þetta grefur náttúrlega undan samstöðunni um skatttekjur ríkisins og bara almennum áhuga og nauðsyn þess að landsmenn greiði skatta og að þeir viti nákvæmlega í hvað þeir fara. Þetta bitnar nú einu sinni líka á þeim sem þurfa svo sannarlega á bótum almannatrygginga að halda. Það er því til mikils að vinna að málaflokkurinn sé tekinn föstum tökum.
Það er rétt að upplýsa það hér að ég spurði sérstaklega um þetta á fundi fjárlaganefndar fyrir rúmu ári síðan. Fulltrúar ráðuneytisins komu á okkar fund þar sem við ræddum þessi mál og ég spurði hvort það væri sérstök deild innan almannatryggingakerfisins sem fjallaði sérstaklega um bótasvik. Svarið var: Nei. Ég spurði: Með hvaða hætti er unnið í þessum málum? Þá var svarið: Það er símsvari. Þetta voru svörin sem ég fékk í nefndinni. Ég held að við verðum að taka þessi mál föstum tökum. Miklar fjárhæðir eru í húfi og þetta skiptir líka verulegu máli fyrir þá sem (Forseti hringir.) svo sannarlega þurfa á almannatryggingakerfinu að halda.