151. löggjafarþing — 6. fundur,  8. okt. 2020.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.

5. mál
[12:21]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er einfalt að finna út úr því að ein aukakróna í útgjöld fyrir lágtekjufólk er þungbærari en ein aukakróna fyrir tekjuhærra fólk. Þess vegna skiptir svo miklu máli að skoða heildaráhrif fjárlaga og tekjuráðstafana ríkisins. Þá komast menn einfaldlega að þeirri niðurstöðu að þessi ríkisstjórn er að beita sér fyrir aðgerðum sem koma tekjulægra fólki betur en öðrum.