breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að mörgu leyti mjög fínt innlegg inn í umræðu um ríkisfjármálin á þessum tímapunkti. Mig langar örstutt að fjalla um skattahækkanir og þá á móti skattalækkanir. Við erum hér með eitt frumvarp sem fjallar um krónutölugjöldin og -skattana, sem við höfum að jafnaði ekki hækkað undanfarin ár í takt við verðlag. Þannig höfum við verið að sjá þann skattstofn sem hvílir á þessum gjöldum smám saman vera að gefa eftir. En ég deili alveg því sjónarmiði að það er ekkert sjálfgefið að við látum slík gjöld ávallt fylgja í humátt á eftir verðlagi. Þegar við hv. þingmaður sátum saman í ríkisstjórn tókum við okkur til eitt árið og settum allt á núll.
Það er nauðsynlegt að hafa það í huga, þegar við ræðum um fjárlagafrumvarpið í tengslum við það frumvarp sem er hér sérstaklega á dagskrá, að við erum með heilmörg önnur mál sem hafa áhrif til lækkunar á sköttum á næsta ári. Ég ætla að leyfa mér að vísa hér til kynningar á fjárlagafrumvarpinu um þetta. Við fáum um áramót síðustu skrefin í tekjuskattslækkuninni, upp á 14,3 milljarða til lækkunar. Við fáum sömuleiðis fyrsta áfanga við lækkun bankaskatts upp á 1,7 milljarða, afnám flutningsjöfnunargjalds, ýmsar aðgerðir vegna Covid, þar með talið flýtingu á öðrum áfanga bankaskattsins, upp á 4,9 milljarða, tollafgreiðslugjöld felld niður, gistináttaskattur felldur niður, aukin endurgreiðsla virðisaukaskatts vegna íbúðarhúsnæðis, bifreiðaviðgerða o.s.frv., margir milljarðar þar undir, fyrir utan allt annað sem við höfum boðað, erfðafjárskattinn sem er á dagskrá í dag, fjármagnstekjuskattinn sem kemur síðar, stuðningur við almannaheillafélög o.s.frv. (Forseti hringir.) Þetta allt samanlagt verður 37,8 milljarðar til skattalækkana á næsta ári.