151. löggjafarþing — 7. fundur,  12. okt. 2020.

hækkun atvinnuleysisbóta.

[15:04]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Í umræðu um fjármálaáætlun í síðustu viku spurði ég hæstv. forsætisráðherra um stöðu atvinnulausra og ráðherra svaraði mörgu mjög skýrt, m.a. hvað hefði verið gert, nefndi hækkun bóta 2018 og lengingu tekjutengdra bóta. Enn eru samt sem áður a.m.k. 1.200 manns á grunnatvinnuleysisbótum og ekki stendur til að hækka þær samkvæmt fjárlögum. Þar sem hæstv. ráðherra svaraði ekki meginspurningu minni fyrir viku, freista ég þess nú að einfalda fyrirspurn mína: Hvaða helstu rök sér hæstv. forsætisráðherra gegn því að hækka grunnatvinnuleysisbætur við núverandi aðstæður?