151. löggjafarþing — 7. fundur,  12. okt. 2020.

hækkun atvinnuleysisbóta.

[15:05]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Hv. þingmaður spurði mig í síðustu viku og bað mig um að fara yfir helstu rök gegn hækkun atvinnuleysisbóta, sem ég hef ekki tjáð mig um hingað til að séu nein afgerandi rök gegn, þannig að mér fannst það satt að segja kúnstug spurning. Hins vegar hef ég sagt að núna þurfi að skoða það í heildarsamhengi hlutanna. Hv. þingmaður hafði það réttilega eftir mér að við fórum strax í það verkefni að hækka atvinnuleysisbætur því að þær voru orðnar mjög fjarri lágmarkslaunum. Þær væru u.þ.b. 235.000 kr. ef þær hefðu ekki verið hækkaðar 2018, sem var staðan þá. Þær eru núna u.þ.b. 290.000 kr.

Það sem ég hef hins vegar lagt áherslu á er að við ræðum í þessu heildarsamhengi hverju tryggingagjaldið á að standa undir. Hér hafa margir þingmenn lagt áherslu á að lækka tryggingagjald eða jafnvel fella það niður. Þær hugmyndir hafa komið fram. Mér hefur fundist mjög mikilvægt, ef við ræðum upphæð atvinnuleysisbóta, að við ræðum það í samhengi við tryggingagjaldið, hvaða áherslur við viljum leggja, undir hverju það á að standa, og sömuleiðis að við ræðum það í samhengi við bætur almannatrygginga. Þá er ég að vitna til örorkulífeyris og ellilífeyris. Hvaða samhengi á að vera milli upphæðar atvinnuleysisbóta annars vegar og þeirra upphæða hins vegar?

Að því sögðu hef ég hvorki útilokað að upphæð atvinnuleysisbóta verði tekin til endurskoðunar né heldur upphæðir almannatrygginga, þannig að ég veit eiginlega ekki af hverju hv. þingmaður er að biðja mig um að fara með sérstök rök gegn hækkun atvinnuleysisbóta. Kannski getur hann útskýrt af hverju hann er svona spenntur fyrir því að heyra það í síðari fyrirspurn.