tekjutenging atvinnuleysisbóta.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Þetta er líka spurning sem kom hér í síðustu viku. Þá benti ég á að hæstv. félags- og barnamálaráðherra hefði sagt að hann hygðist skoða fyrirkomulag framlengingar tekjutengdra atvinnuleysisbóta, hverjir það væru sem þar dyttu milli skips og bryggju, ef við hugsum þetta sem sérstakt úrræði fyrir þá sem misst hafa vinnuna vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Það snýst í raun og veru um það sem hv. þingmaður gerði hér að umtalsefni. Þá kom fram í máli mínu að hæstv. félags- og barnamálaráðherra myndi taka það til skoðunar og hve stór hópur það er í raun og veru sem ekki nýtur þessarar framlengingar á tekjutengdum atvinnuleysisbótum. Ég vænti þess að það komi inn á borð þingsins síðar í þessum mánuði, svo það sé sagt.
Síðan vil ég segja, af því að hv. þingmaður talar um bútasaum, að ég get ekki fallist á þá líkingu. Við stóðum hér í marsmánuði og ekki man ég eftir þeim hv. þingmönnum sem þá komu upp og sögðu: Gerum þriggja ára áætlun um heimsfaraldur kórónuveiru, af því að við sjáum það fyrir okkur að hann muni vara hér a.m.k. í ár og jafnvel tvö. Nei, ég man bara ekki eftir þeim orðum og man þó nokkuð vel eftir umræðunni. Ég held að allir hv. þingmenn, og einnig sú sem hér stendur, hafi verið mjög bjartsýnir á að við værum að tala um skemmri tíma úrlausnarefni þegar kæmi að þessum heimsfaraldri. Staðan núna er hins vegar þannig að ég held að við þurfum að horfast í augu við að þetta er lengri tíma úrlausnarefni. Við erum um leið alltaf að læra af því sem fram kemur um þessa veiru, samanber breytta grímunotkun í þingsal, sem er nýlunda hér í dag, og alveg eins það sem við erum að gera á öðrum sviðum samfélagsins. Í þessu tilviki held ég að við verðum einfaldlega líka að vera sanngjörn hvert við annað. Við erum í raun og veru alltaf að bregðast við nýjum og áður óþekktum aðstæðum í þessum málum.