tekjutenging atvinnuleysisbóta.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Það er alveg rétt, þetta sáu menn ekki í mars en menn sáu það býsna vel í lok ágúst. Engu að síður var reglugerðin sem ég er að vísa í sett. Það gleður mig að heyra þessi orð hæstv. forsætisráðherra sem eru ekki alveg á pari við þau svör sem ég fékk hjá hæstv. félagsmálaráðherra í síðustu viku. Það er gott að verið sé að skoða þetta og ég get fullyrt, a.m.k. hvað varðar þingflokk Viðreisnar, að við munum taka vel í þær breytingar sem hæstv. forsætisráðherra boðar hér.
En mig langar til að beina sjónum að öðru tengdu, þ.e. rekstraraðilum. Við vitum að mörg fyrirtæki á Íslandi eru í árstíðabundnum rekstri. Tekjurnar koma með hækkandi sól og fjölgun ferðamanna. Það eru ekki síst þau fyrirtæki sem eru í vanda núna. Og það er alkunna, jafnvel þegar ekkert Covid er, að fyrirtæki safna upp skattskuldum og borga þær þegar vel árar í árstíðabundnum rekstri. En eins og staðan er núna njóta þessi fyrirtæki ekki lokunarstyrkja vegna skattskulda. (Forseti hringir.) Það er ákveðin ósanngirni í því. Ég spyr hvort það hafi eitthvað verið skoðað og hvort það gæti mögulega verið ástæðan fyrir því að eftirspurn eftir lokunarstyrkjum er langt undir því (Forseti hringir.) sem búist var við. Ég spyr líka hvort komið hafi til tals að leyfa frestanir og dreifingar á skattskuldum fyrirtækja líkt og gert var eftir hrun þannig að fyrirtækin geti verið áfram í skilum þó að þau ráði ekki við að borga þessar skuldir (Forseti hringir.) og geti þar með þegið bjargir.