hækkun almannatrygginga.
Herra forseti. Hv. þingmaður spyr hér töluvert um frítekjumörkin. Ég vil minna á að þegar Alþingi ákvað 2016 að endurskoða kerfi almannatrygginga hvað varðar aldraða þá var öllum þessum frítekjumörkum breytt. Raunar ákvað núverandi ríkisstjórn að hækka sérstaklega frítekjumark vegna atvinnuþátttöku. Hins vegar hefur slík efnisleg umræða ekki farið fram um örorkuþátt kerfisins. Ég vil bara ítreka það enn og aftur og ég trúi ekki öðru en að hv. þingmaður sé sammála mér um það, því hann hefur alla vega ekki andmælt því hátt hér í pontu, að það er þörf á því að taka þetta kerfi til efnislegrar umræðu. Ég vitna til þess sem ég hef sagt að þessar víxlverkandi skerðingar milli bótaflokka gera það að verkum að þeir fjármunir sem við setjum í þetta kerfi nýtast kannski ekki endilega með eins réttlátum og sanngjörnum hætti og við myndum vilja.
Það þarf enginn að efast um vilja félags- og barnamálaráðherra, sem fer með þennan málaflokk, til að draga bæði úr skerðingum (Forseti hringir.) og gera jákvæðar breytingar á kerfinu. En það er mikil þörf á þeirri heildarendurskoðun sem ég hef áður nefnt.