151. löggjafarþing — 7. fundur,  12. okt. 2020.

lögmæti og meðalhóf sóttvarnaaðgerða.

[15:27]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að koma með þessa umræðu hingað inn í þingsal, ég held að hún sé nauðsynleg. Við þurfum að taka þessa umræðu þegar við ráðumst í svo miklar sóttvarnaaðgerðir. Við erum að nýta heimildir sóttvarnalaga gríðarlega og meira en við höfum áður gert. Þess vegna er mikilvægt að við ræðum það hvar meðalhófið er. Hvað um okkar grundvallarmannréttindi? Hvar getum við gert betur? Hvað er réttlætanlegt að skerða til að tryggja öryggi og heilsu fólks sem er markmiðið með öllum þessum sóttvarnaaðgerðum? Ég held að miðla megi betur því mati og þeirri umræðu sem við tökum í ríkisstjórninni og við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og sóttvarnalækni. Þarna er einhver lína sem við eigum að þora að ræða um. Við megum ekki bara horfa á sóttvarnaráðstafanir einar og sér og segja að þær trompi allt og að ekki megi ræða frelsi einstaklingsins. Þetta eru grundvallarmannréttindi sem við verðum að virða og við viljum halda í þrátt fyrir einhverjar takmarkanir á þeim sem eru þó réttlættar með því að verið er að tryggja heilsu, öryggi og velferð fólks til lengri tíma í staðinn.

Í þessari umræðu allri þarf líka að spyrja erfiðra spurninga. Það er verkefni okkar stjórnmálamanna að spyrja erfiðra spurninga um það hvernig áhrif þetta hefur, af hverju við erum að takmarka þetta, af hverju við erum að ganga lengra með aðrar ákvarðanir en t.d. í síðustu bylgju. Það verður verkefni okkar áfram og það á að vera verkefni okkar allra stjórnmálamanna því að við megum heldur aldrei gleyma því, það hef ég oft sagt og segi aftur, að takmarkanirnar sem við tökum upp núna til að vernda heilsu fólks og öryggi mega aldrei hafa verri áhrif eftir en áður. Það er það mat sem við höfum alltaf verið að ræða. Við höfum verið opinská í umræðu um það í ríkisstjórn. Það er afar mikilvægt til að ná því meðalhófi sem við höfum reynt að feta.