151. löggjafarþing — 7. fundur,  12. okt. 2020.

lögmæti og meðalhóf sóttvarnaaðgerða.

[15:29]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég vil einmitt fara aðeins yfir það að til þess að uppfylla meðalhófsreglu þá þurfa stjórnvöld að meta markmiðið sem á að ná og áhrifin sem aðgerðirnar munu hafa á önnur réttindi. Það þarf að eiga sér stað hagsmunamat á þessum grundvelli. Nú er ég ekki að segja að hagsmunamat stjórnvalda hafi verið rangt, alls ekki. Ég styð sóttvarnaaðgerðir og ég styð fullkomlega að við berjumst gegn þessari veiru og þessari vá. Ég tel hins vegar að það sé mikilvægt, ef við ætlum að hafa almenning í liði með okkur og ef við ætlum að virða lýðræðisleg grunngildi, að þessum upplýsingum og þessu hagsmunamati sé miðlað til almennings á aðgengilegan, skýran og skiljanlegan hátt þannig að allir geti áttað sig á því hvaða hagsmunamat hafi átt sér stað.

Ég vil á síðustu tíu sekúndunum spyrja hæstv. ráðherra hvers vegna ekki er búið að uppfylla skilyrði sem finna má í mannréttindasáttmála Evrópu um að láta aðalritara Evrópuráðsins vita þegar til stendur að víkja frá grundvallarmannréttindum á neyðartímum. (Forseti hringir.) Við erum ekki búin að tilkynna það til Evrópuráðsins og við ættum að gera það. Hver vegna er ekki búið að gera það?