151. löggjafarþing — 7. fundur,  12. okt. 2020.

lögmæti og meðalhóf sóttvarnaaðgerða.

[15:30]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Þetta er afar mikilvæg umræða hjá hv. þingmanni. Stuðningur almennings er auðvitað mjög mikilvægur á þessum tímum. Við bindum vonir við að almenningur virði þær takmarkanir sem við setjum til að við náum tilsettum árangri og vonandi eru takmarkanirnar til skemmri tíma ef við fáum fólk í lið með okkur. Það er lykilatriði að hafa almenning með okkur í þessu verkefni og áhrif aðgerðanna á önnur réttindi eru auðvitað alltaf mat sem fer fram við hverja einustu ákvörðun sem við tökum. Ef við ætluðum bara að ná þeim árangri að kveða veiruna algerlega niður værum við öll heima hjá okkur, þá væri enginn að gera neitt. Þá væru það bara sóttvarnarökin ein sem fengju að ráða framgangi í samfélaginu. En það er auðvitað ekki þannig. Við erum að reyna að lifa sem eðlilegustu lífi með þessari veiru til lengri tíma og við þurfum að geta rætt þetta mál. Það er líklegt að við séum kannski í miðjunni, kannski komin aðeins lengra en að miðju, eða kannski alls ekki farin að nálgast miðjuna í þessum faraldri. Ég fagna þessari umræðu og þakka fyrir spurninguna. Við eigum auðvitað í miklu alþjóðasamstarfi og ráðfærum okkur við ráðherra erlendis og erum í stöðugu samtali við þá, svo að ég komi að því rétt í lokin.