151. löggjafarþing — 7. fundur,  12. okt. 2020.

fjöldi hælisleitenda.

[15:34]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Það er rétt hjá hv. þingmanni að stór hluti þeirra sem hingað koma þessa dagana er fólk í leit að alþjóðlegri vernd. Það er áskorun fyrir kerfið að ráða við þann fjölda af því að við viljum gera vel í þessu kerfi sem og öðrum. Við erum að reyna að vinna að því að ná niður málsmeðferðartíma fólks af því að í skilvirkninni felst mikil mannúð, að fólk fái svar fyrr o.s.frv. Umsóknirnar árið 2019 voru gríðarlega margar. Við höfum líka aldrei veitt fleirum vernd en það ár, af því að kerfið okkar virkar einfaldlega þannig að þeir sem þurfa á vernd að halda, þeir sem falla undir þá skilgreiningu að þurfa vernd gegn ofsóknum og lífshættulegu ástandi, fá hana hér á landi.

Varðandi spurningu hv. þingmanns um af hverju þeir koma hingað frekar en annað, af hverju við fáum meiri fjölda miðað við höfðatölu, þá höfum við auðvitað reynt að leita skýringa á því og skoðað hópinn og hvernig lög okkar eru frábrugðin lögum í nágrannalöndunum. Það er kannski helst að nefna að við erum með talsvert frábrugðið kerfi þegar kemur því að veita fólki vernd sem fengið hefur vernd í öðru Evrópuríki. Hingað kom mikill fjöldi hælisleitenda bæði á þessu ári og á síðasta ári, sem virðist vera talsvert stærri hópur en í löndunum í kringum okkur, af því að við erum alltaf að bera okkur saman við löndin í kringum okkur, hvað við getum lært og hvar við getum gert betur. Auðvitað má líka nefna að málsmeðferðartími er talsvert styttri í langflestum af þessum málum en í löndunum í kringum okkur.