fjöldi hælisleitenda.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra svarið en vildi gjarnan óska þess að ráðherrann færi með ákveðnari hætti í það hvað hún telur skýra þennan mikla mun, 400% mun, á fjölda umsókna um alþjóðlega vernd í Danmörku og Noregi annars vegar og á Íslandi hins vegar. Hæstv. ráðherra kom inn á að töluverður munur væri á þeim hópum sem koma hingað og síðan þeim sem sæktu t.d. um í Danmörku og Noregi. Í hverju felst reglumunurinn fyrst og fremst sem, ef ég skil rétt, hæstv. ráðherra telur að skýri þetta að einhverju marki? Horfir hún mögulega til þess að aðlaga reglurnar að því sem gerist til að mynda víða í Skandinavíu? Ég nefni Danmörku sem dæmi og það sem hefur verið gert þar undir forystu sósíaldemókrata.
Að endingu langar mig að spyrja hvort hæstv. ráðherra hafi á takteinunum tölur um hver sé áætlaður heildarkostnaður (Forseti hringir.) við móttöku hælisleitenda og meðferð mála þeirra vegna óska um alþjóðlega vernd á þessu ári.