skýrsla um sóttvarnalög og heimildir stjórnvalda.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Eins og hæstv. forseti Alþingis fór yfir sendi ég bréf á þingið í síðustu viku og lagði þar til að tekin yrði umræða um þessa greinargerð, sem unnin var að beiðni minni og heilbrigðisráðherra og var skilað í septembermánuði síðastliðnum. Þar koma fram ýmsar ábendingar, m.a. hvað varðar innleiðingu reglugerðar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, m.a. hvað varðar hugtakanotkun. Eitt dæmi er að orðið sóttkví er ekki í sóttvarnalögum, heldur er notað orðið afkvíun, sem er auðvitað ekki mjög gagnsætt. Því þarf að samræma hugtök. Einnig þarf að tryggja að ákveðin sóttvarnaúrræði, t.d. frelsisskerðing sem felst í því að vera skikkaður í sóttkví, verði borin undir dóm, svo dæmi sé tekið. Einnig er rædd gjaldtaka sem verið hefur við lýði varðandi skimun.
Meginniðurstaðan í greinargerðinni er hins vegar að þegar um er að ræða rétt fólks til lífs og heilsu beri stjórnvöldum ekki aðeins skylda til að bregðast við með mjög afgerandi aðgerðum heldur sé það í raun og veru frumskylda þeirra samkvæmt greinargerðinni. Og þegar við horfum á skerðingu annarra réttinda sem fylgt getur slíkum aðgerðum má segja að réttur fólks til lífs og heilsu trompi ýmis önnur réttindi. Það er stóra niðurstaðan í þessari greinargerð sem ég hef boðist til að fara ítarlega yfir í þinginu. Ég hef orðið vör við að þrátt fyrir að Íslendingar hafi gengið skemur í ýmsum sóttvarnaráðstöfunum en velflest önnur Evrópuríki — skemur þegar horft er til þess hvað gert hefur verið hér, og nægir þar að nefna ríki þar sem sett hefur verið á útgöngubann, börnum hefur verið haldið heima og fleira — hefur komið upp töluverð umræða, þannig að ég vil endilega eiga hana hér, hvenær sem þingið kallar.