151. löggjafarþing — 7. fundur,  12. okt. 2020.

skýrsla um sóttvarnalög og heimildir stjórnvalda.

[15:44]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Aðeins um tímann í þessu. Heilbrigðisráðherra var með endurskoðun sóttvarnalaga á dagskrá á vorþingi, í marsmánuði upphaflega. Þeirri vinnu hefur verið flýtt þannig að við megum eiga von á frumvarpi um endurskoðun sóttvarnalaga í samráðsgátt Stjórnarráðsins í nóvember, eftir því sem mínar upplýsingar segja mér, þannig að við ættum jafnvel að geta séð því dreift hér á Alþingi í desember. Það er spurning hvort tekst að mæla fyrir því þá. En þá geta hv. þingmenn alla vega ornað sér við þá hugsun að þessari vinnu hefur verið flýtt og við munum ná að ljúka þessu væntanlega hér á þingi fyrr en síðar.

Síðan má ræða aðeins um tilmæli og reglur. Það er ljóst að það er ekki nákvæmlega sami hluturinn. Annars vegar erum við með reglugerð sem heilbrigðisráðherra gefur út en síðan eru ýmis tilmæli frá sóttvarnalækni. Það er til að mynda ekki ferðabann í landinu, en við erum eigi að síður hvött til þess að vera ekki að ferðast út fyrir höfuðborgina því að hér eru hertari aðgerðir en annars staðar á landinu. Ég held að við áttum okkur öll á því að það er ákveðinn munur á þeim reglum sem eru settar (Forseti hringir.) og hins vegar tilmælum, sem byggja auðvitað líka á ákveðinni ábyrgð okkar sjálfra á því hvað við gerum til að fylgja tilmælum.