merkingar og upplýsingaskylda varðandi vörur sem tengjast orkunotkun.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):
Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi á þskj. 12, frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 72/1994, um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi vörur sem tengjast orkunotkun. Megintilefni frumvarpsins er innleiðing á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2017/1369, frá 4. júlí 2017, um setningu ramma fyrir orkumerkingar og niðurfellingu tilskipunar 2010/30. Sú tilskipun var innleidd með breytingu á lögum um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi vörur sem tengjast orkunotkun, nr. 72/1994. Lögin eru rammalöggjöf sem leggur grunn að frekari reglusetningu og hefur fjöldi reglugerða um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi orkunotkun einstakra vörutegunda verið settur á grundvelli laganna.
Eitt af meginmarkmiðum þeirrar reglugerðar sem hér er lagt til að verði innleidd er að stuðla að orkusparnaði, að því að neytendur verði betur upplýstir um orkunotkun vara og að hvetja til þess að orkunýtnari vörur verði frekar fyrir valinu. Neytendur skuli jafnframt vera upplýstir um breytta virkni vöru áður en kemur til uppfærslu hennar og hafa möguleika á að hafna uppfærslu ef hún leiðir til verri orkunýtni.
Í fyrsta lagi er skilgreindur nýr og breyttur kvarði fyrir merkingar vara og kerfa sem tengjast orkunotkun. Settur er fram nýr og einfaldari kvarði fyrir merkingar vara og kerfa sem tengjast orkunotkun auk þess sem leitast er við að auðvelda upplýsingagjöf og umsjón með miðlægum vörugagnagrunni. Í einhverjum vöruflokkum hefur bætt hönnun leitt til bættrar orkunýtni þannig að flestar vörur falla í efstu orkunýtniflokkanna. Í þeim tilvikum er kvarðinn breyttur með því að skilgreina strangari kröfur fyrir hvern flokk. Merkimiðar með breytta kvarða endurspegla skýrt þessa breytingu og eru áfram í samræmi við aðra merkimiða í útliti og uppbyggingu.
Í öðru lagi er skylda lögð á birgðasala um skrásetningu upplýsinga um orkunotkun vara í miðlægan gagnagrunn. Birgðasalar og innflytjendur vara með orkumerkingar bera ábyrgð á að setja upplýsingar um vöru í gagnagrunninn ef þeir eru að flytja vöru inn á innri markað Evrópska efnahagssvæðisins. Upplýsingar um vöru skulu skráðar í vörugagnagrunninn áður en hún er sett á markað. Með honum verður auðveldara fyrir neytendur að finna og bera saman vörur sem tengjast orkunotkun. Seljendur sem þurfa nýjar orkumerkingar eða ný upplýsingablöð geta sótt um þau beint úr þessum grunni og verður einfaldara fyrir stjórnvöld að sinna markaðseftirliti í ljósi betri yfirsýnar yfir vörur á markaði. Birgðasalar geta einnig séð hvenær og hvort eftirlitsyfirvöld sæki slík tækniskjöl en gagnagrunnurinn skal hvorki koma í staðinn fyrir né breyta ábyrgð eftirlitsyfirvalda. Þessir gagnagrunnar eru settir á laggirnar til að bæta upplýsingagjöf. Birgðasalinn sem flytur vöruna fyrst inn á innri markaðinn sér um þessa skráningu þannig að innlendir aðilar sem flytja vöru frá Evrópu sjá ekki um skráningu þar sem hún ætti nú þegar að vera til staðar, svo það sé nefnt.
Í þriðja lagi er nafnbreyting stofnunar sem fer með eftirlit samkvæmt lögunum vegna þess að það hefur verið á hendi Mannvirkjastofnunar sem nú ber heitið Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Þess vegna er því breytt.
Verði frumvarpið að lögum er ekki gert ráð fyrir að það hafi teljandi áhrif á atvinnulíf eða stjórnsýslu né fjárhagsleg áhrif á ríkissjóð og umfang eftirlits hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun breytist ekki.
Hæstv. forseti. Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði frumvarpinu vísað til hv. atvinnuveganefndar og 2. umr.