151. löggjafarþing — 7. fundur,  12. okt. 2020.

merkingar og upplýsingaskylda varðandi vörur sem tengjast orkunotkun.

12. mál
[15:50]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka ráðherra fyrir að mæla fyrir þessu máli sem fljótt á litið virðist vera til bóta. Við getum alla vega verið sammála um að það er skynsamlegt að spara orku eins mikið og við mögulega getum. Það sem mig langar að spyrja út í er hins vegar eitthvað sem ég hef ekki fundið, það getur verið að mér hafi sést yfir það þegar ég las frumvarpið. Hér er rætt um alls konar hluti sem seljendur og birgðahaldarar, birgðasalar, eiga að taka að sér, aukna upplýsingagjöf og þess háttar. Undir 6. lið, um mat á áhrifum, kemur m.a. fram að bifreiðasalar og seljendur verði að tryggja að vörur sem þeir selja og markaðssetja séu í samræmi við ákvæði gildandi laga, reglugerðir og staðla o.s.frv. Síðar í þessum kafla segir að verði frumvarpið óbreytt að lögum muni það ekki hafa teljandi áhrif á ríkissjóð.

Mig langar að spyrja ráðherra út í það hvort einhver annar kostnaður fylgi þessu frumvarpi, kostnaður sem mun lenda á seljendum eða bifreiðasala í þessu tilviki, sem þeir sjá sig tilneydda til að velta út í verðlag o.s.frv. Er enginn kostnaður sem verður af þessu eða er það bara enginn kostnaður fyrir ríkissjóð? Og ef það er kostnaður, hvar lendir hann?