merkingar og upplýsingaskylda varðandi vörur sem tengjast orkunotkun.
Herra forseti. Ég þakka ráðherra fyrir svörin. Það er ánægjulegt að heyra að ráðherra hafi kallað eftir upplýsingum um þennan kostnað, hvort hann væri til staðar og hvar hann lenti þá. Ég held líka að það sé mjög mikilvægt að það komi fram í frumvörpum ríkisstjórna, þeim sem lögð eru fram hér á þingi, hvort kostnaðarmat hefur farið fram og þá hvort kostnaður er áætlaður mikill, lítill eða enginn. Ég held að það sé mikilvægt að nefndin íhugi það þegar hún fer yfir þetta mál, og bæti því í nefndarálitið þegar að því kemur, að kallað verði eftir upplýsingum um hvort kostnaður fylgi og hvort hann lendi þá á þeim aðilum sem um ræðir, og það komi þá skýrt fram ef kostnaður er enginn þannig að þingið sendi klárlega þau skilaboð að það hafi kannað þennan kostnaðarlið.