151. löggjafarþing — 7. fundur,  12. okt. 2020.

merkingar og upplýsingaskylda varðandi vörur sem tengjast orkunotkun.

12. mál
[15:53]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S) (andsvar):

Herra forseti. Það er einmitt allalgengt að það komi fram, eins og hér segir, að ekki sé gert ráð fyrir að málið hafi teljandi áhrif á atvinnulíf eða stjórnsýslu. En ég tek hjartanlega undir það með hv. þingmanni að við getum klárlega gert betur í þessu efni, þannig að það sé algjörlega skýrt að það hafi verið kannað, af hálfu framkvæmdarvaldsins og ekki síður á þingi, hvort viðbótarkostnaður fylgir, hvort sem það er beinn kostnaður eða afleiddur með aukinni reglubyrði. Ég hlakka til að geta farið að ræða hér samkeppnismat sem við höfum unnið, eða OECD hefur unnið fyrir okkur, en það er einmitt liður í því að við séum algjörlega meðvituð um þetta þegar við erum að setja samkeppnishindranir eða aukinn kostnað. Við sem smíðum frumvörp og reglugerðir, bæði sem löggjafarvald og sem framkvæmdarvald, getum klárlega gert betur í því að það sé alveg skýrt hvenær við erum að leggja aukinn kostnað, hvort sem hann er beinn eða óbeinn, á atvinnulífið.