151. löggjafarþing — 7. fundur,  12. okt. 2020.

viðskiptaleyndarmál.

13. mál
[15:55]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um viðskiptaleyndarmál, mál nr. 13 á þskj. 13. Frumvarpi þessu er ætlað að styrkja réttarvernd viðskiptaleyndarmála og gera handhöfum þeirra auðveldara að leita réttar síns. Frumvarpinu er jafnframt ætlað að einfalda stofnanaumgjörð á sviði viðskiptaleyndarmála með afnámi sérstaks stjórnsýslueftirlits. Frumvarpið er í samræmi við áherslur í nýsköpunarstefnu fyrir Ísland um að íslenskt regluverk ýti undir samkeppnishæfni og nýsköpun og að eignarréttur fyrirtækja og frumkvöðla yfir hugverkum og viðskiptaleyndarmálum verði verndaður.

Frumvarpið felur jafnframt í sér innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/943 um verndun trúnaðarupplýsinga um sérþekkingu og viðskipti eða viðskiptaleyndarmál gegn ólögmætri öflun, notkun og birtingu þeirra. Viðskiptaleyndarmál gegna mikilvægu hlutverki fyrir frumkvöðla í íslensku atvinnulífi og skilvirk vernd þeirra stuðlar að heilbrigðri samkeppni, aukinni nýsköpun, rannsóknum og þróun og auknum möguleikum til hagnýtingar í atvinnurekstri. Ákvæði um vernd atvinnuleyndarmála hafa verið í íslenskum rétti allt frá árinu 1933. Með frumvarpinu er lagt til að sett verði í fyrsta sinn heildarlög um viðskiptaleyndarmál og réttarúrræði til verndar þeim. Verði frumvarpið að lögum munu hin nýju lög koma í stað sérákvæða um atvinnuleyndarmál, sem í dag eru í 16. gr. c laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu, nr. 57/2005. Í frumvarpinu er kveðið mun skýrar á um réttarvernd viðskiptaleyndarmála en í gildandi löggjöf. Lagt er til að hugtakið viðskiptaleyndarmál verði notað sem heildarheiti um allar tegundir leyndarmála sem hafa viðskiptalegt gildi og sem gerðar hafa verið eðlilegar ráðstafanir til að halda leyndum. Þá er sérstaklega kveðið á um hvað teljist ólögmæt öflun, notkun eða afhjúpun viðskiptaleyndarmáls.

Í frumvarpinu er kveðið ítarlega á um úrræði til verndar viðskiptaleyndarmálum á borð við lögbann, dómsmál, skaðabætur o.fl. Einnig er kveðið sérstaklega á um vernd viðskiptaleyndarmála á meðan á málsmeðferð fyrir dómi stendur. Til að einfalda regluverk á sviði viðskiptaleyndarmála er lagt til að afnema stjórnsýslueftirlit Neytendastofu með viðskiptaleyndarmálum. Vernd viðskiptaleyndarmála snertir neytendur einungis með takmörkuðum hætti og æskilegra er að Neytendastofa beini sjónum sínum fyrst og fremst að þeim verkefnum sem varða hagsmuni neytenda með beinum hætti. Auk þess er aðstaða dómstóla um margt betri en eftirlit stjórnvalda til að fjalla um deilur um viðskiptaleyndarmál.

Að lokum er með frumvarpinu lagt til að hækkuð verði refsimörk vegna ólögmætrar öflunar, notkunar og afhjúpunar viðskiptaleyndarmála og sett verði sérstakt refsiákvæði sem tekið getur til iðnaðarnjósna. Núverandi refsimörk eru lág og endurspegla verndarhagsmuni viðskiptaleyndarmála ekki með fullnægjandi hætti. Með hækkun refsimarka næst samræmi við refsimörk áþekkra verndarhagsmuna í almennum hegningarlögum og við norræna löggjöf um vernd viðskiptaleyndarmála.

Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að efni frumvarpsins sé ætlað að hafa áhrif til hagsbóta fyrir handhafa viðskiptaleyndarmála. Nær það m.a. sérstaklega til nýsköpunarfyrirtækja og lítilla og meðalstórra fyrirtækja sem hafa síður fjárhagslegt bolmagn til að afla sér og viðhalda einkarétti sem fæst með skráningu einkaleyfa. Ekki er gert ráð fyrir að frumvarpið hafi í för með sér kostnað fyrir ríkissjóð en í frumvarpinu er, sem áður segir, gert ráð fyrir að stjórnsýslueftirlit Neytendastofu með viðskiptaleyndarmálum verði aflagt. Frumvarpið er samið í ráðuneytinu en haft var samráð við dómsmálaráðuneyti vegna viðurlagaákvæða og réttarfarsákvæða og einnig við dómstólasýsluna vegna ákvæða um þagnarskyldu þeirra sem koma að meðferð mála um ólögmæta öflun, notkun og afhjúpun viðskiptaleyndarmála. Í samráðsgátt var ekki að sjá að einhverjir væru ósáttir við þær breytingar sem hér eru lagðar til. Neytendastofa mótmælir því ekki að stjórnsýslueftirlit verið aflagt þar. Og bara til að nefna það þá fagna haghafar eins og Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins og fagaðilar sem þekkja til hugverkaréttinda, þessari breytingu.

Virðulegur forseti. Að lokinni umræðunni legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar til umfjöllunar.